Á milli Kína og bandamanna: Ísland þarf opinbera stefnu gagnvart Kína áður en aðrir móta hana fyrir okkur
Lengi var rætt um sérstöðu norðurslóða, að þær væru einangraðar frá sviptingum í alþjóðastjórnmálum. Sá tími er liðinn. Strategísk lega Íslands á svæðinu hefur verið tíðrædd undanfarið vegna aukinnar spennu í heimsmálunum. Vissulega er ríkið án eigin hers og reiðir sig á Atlantshafsbandalagið og tvíhliða varnarsamninginn við Bandaríkin fyrir varnir sínar. Eftir að Rússland hóf sitt blóðuga innrásarstríð í Úkraínu hefur mikilvægi þess að auka viðnámsþrótt ríkisins sjaldan verið meira.
Yfirlýsingar Bandaríkjastjórnar um kínverskt tangarhald í grænlensku samfélagi sem og að kínversk og rússnesk skip hafi umkringt eyjuna voru notaðar sem rök fyrir því að Bandaríkin þyrftu að eignast Grænland. Þrátt fyrir að yfirlýsingarnar eigi ekki við rök að styðjast skóku þær Atlantshafsbandalagið. Málinu er nú lokið með samningi þar sem vilji Bandaríkjanna til að neita Kína um aðgengi að Grænlandi er festur í sessi.
Kína hefur jafnframt hafið fyrstu áætlunarsiglingar sínar um norðausturleiðina (e. Northern Sea Route) frá Austur-Kína, meðfram ströndum Rússlands, allt til Rotterdam. Ísland og Kína hafa átt í góðu efnahagslegu sambandi, hafa fríverslunarsamning, hafa átt í sterkum tengslum hvað varðar rannsóknir á norðurslóðum og í lok október hefst beint áætlunarflug Air China á milli landanna, með viðkomu í Kaupmannahöfn.
Á sama tíma lýsti NATO því yfir á leiðtogafundi sínum í Washington 2024 að Kína sé „afgerandi stuðningsaðili“ (e. decisive enabler) innrásar Rússlands í Úkraínu, tæknistríð Bandaríkjanna og Kína fer stigvaxandi og rætt er í Evrópu um þörfina á að minnka áhættu (e. derisking) í samskiptum við Kína.
Hvar standa þá samskipti Íslands og Kína í breyttu öryggisumhverfi? Engin opinber stefna er til um samskiptin við Kína; þau einkennast af einstökum ákvörðunum um fríverslun, fjárfestingar, jarðakaup og rannsóknarstöðvar. Ísland þarf að móta opinbera Kínastefnu áður en þrýstingur frá öðrum ríkjum mótar hana fyrir okkur.
Stofnun stjórnmálasambands
Ísland og Kína komu á stjórnmálasambandi árið 1971 en samskiptin voru takmörkuð fyrst um sinn. Stórar breytingar áttu sér stað eftir að Deng Xiaoping tók við stjórnartaumunum eftir erfið ár á tímum menningarbyltingarinnar. Í kjölfarið var efnahagur Kína opnaður til muna og kínverskt samfélag tók miklum breytingum eftir að Kína varð aðili að Alþjóðaviðskiptastofnuninni (WTO) árið 2001.
Í kjölfar fjármálahrunsins á Íslandi 2008 tóku við erfiðir tímar efnahagslega sem og stjórnmálalega í landinu. Bandaríkin höfnuðu beiðni um aðstoð, lán Norðurlandanna komu með skilyrðum og í Icesave-deilunni stóðu Norðurlöndin með Bretum og Hollendingum gegn Íslandi. Það varð til þess að íslensk stjórnvöld leituðu í auknum mæli til Kína til að styrkja efnahagsstöðu landsins. Árið 2010 gerðu seðlabankar ríkjanna til að mynda með sér gjaldmiðlaskiptasamning upp á 3,5 milljarða júana, sem hefur verið endurnýjaður reglulega síðan, síðast í október 2025.
Með auknum áhuga Kína á norðurslóðum opnuðust jafnframt nýjar dyr í samskiptum ríkjanna. Í stuttu máli sagt lágu hagsmunir ríkjanna saman á þessum tíma; Kína vildi aðgengi að norðurslóðum og Ísland vildi styrkja efnahag sinn.
Frá Nubo til Kárhóls og fríverslunarsamningsins
Þegar stiklað er á stóru um samskipti Íslands og Kína kemur málefni Grímsstaða á Fjöllum, eða „Nubo-málið“ svokallaða frá 2011, til hugar. Málið vísar til þess þegar viðskiptajöfurinn Huang Nubo reyndi að kaupa 300 km² landskika á Norðausturlandi að sögn til að byggja upp ferðaþjónustu á svæðinu. Á þeim tíma vakti málið mikla athygli, en deilan snerist að mestu um hvort erlendir aðilar ættu að geta keypt land, sem og mannréttindamál í Kína, fremur en öryggismál.
Málinu lauk líka á þeim nótum. Í nóvember 2011 hafnaði innanríkisráðherra beiðni um undanþágu frá lögum um eignarrétt og afnotarétt fasteigna, með þeim rökum að engin fordæmi væru fyrir því að jafnstórt landsvæði færðist undir erlend yfirráð. Ákvörðunin byggði á lögum um eignarhald á landi, ekki á mati á þjóðaröryggi, enda var ekkert ferli til sem kallaði á slíkt mat.
Gagnrýnendur litu margir hverjir á þetta sem tilraun kínverskra stjórnvalda til að auka ítök sín á norðurslóðum á meðan aðrir bentu á mögulega efnahagslega kosti verkefnisins. Áhugavert er þó að eftir að beiðni Nubo var hafnað reyndi sá hinn sami að kaupa land í Lyngen í Noregi árið 2014 sem og í Austre Adventfjord á Svalbarða sama ár. Norska ríkið keypti Austre Adventfjord sjálft. Á Íslandi réð túlkun ráðherra á lögum um eignarhald á landi, en Norðmenn áttu fleiri verkfæri: þegar síðasta jörðin í einkaeigu á Svalbarða, Søre Fagerfjord, var boðin til sölu tíu árum síðar varaði norska öryggislögreglan (PST) við sölunni og stjórnvöld beittu öryggislögum til að áskilja sér samþykki fyrir henni.
Um svipað leyti og Nubo-málið stóð yfir óskuðu kínversk stjórnvöld eftir áheyrnaraðild í Norðurskautsráðinu og vildu styrkja aðgengi sitt að norðurslóðum. Ísland og hin Norðurlöndin voru meðal helstu stuðningsaðila Kína í því máli á meðan Rússland og Kanada höfðu sínar efasemdir um hvort Kína ætti að verða áheyrnaraðili að ráðinu.
Árið 2012 sótti Wen Jiabao, forsætisráðherra Kína, landið heim. Fjórum mánuðum síðar sigldi ísbrjóturinn Snædrekinn (Xuelong 雪龙) frá Shanghai til Íslands, með viðkomu í Reykjavík og á Akureyri. Ólafur Ragnar Grímsson, þáverandi forseti Íslands, tók á móti áhöfninni á Bessastöðum, sem er annað dæmi um stuðning Íslands við aukna þátttöku Kína á svæðinu.
Norðurljósarannsóknarstöð Heimskautastofnunar Kína var komið á fót á jörð á Norðausturlandi sem nefnist Kárhóll. Auk Heimskautastofnunarinnar tóku tíu aðrar kínverskar stofnanir þátt í samstarfi við yfir tíu innlenda aðila, þar á meðal Rannsóknamiðstöð Íslands. Rannsókn okkar Kristínar Ingvarsdóttur, sem byggir á þrettán djúpviðtölum við fólk sem kom að norðurljósarannsóknum Kína og Japans á Íslandi, sýnir að ein af ástæðum þess að íslenska ríkisstjórnin studdi við stofnun stöðvarinnar var að liðka fyrir fríverslunarviðræðunum við Kína, því ríkisstjórnin vissi af áhuga kínverskra stjórnvalda á að byggja upp rannsóknarinnviði sína á norðurslóðum. Litið var á þetta sem mikilvægan vináttuvott eða táknrænt skref sem að endingu myndi liðka fyrir fríverslunarsamningnum.
Japanskir vísindamenn hafa stundað sams konar norðurljósarannsóknir á Íslandi í áratugi án þess að það vekti teljandi athygli. Við bendum á að munurinn í viðtökunum liggur ekki í vísindunum heldur í því að í kínverska tilvikinu voru þau notuð sem tæki í þágu annarra markmiða, auk þess sem umgjörðin er afar ólík. Að auki útskýrist munurinn af því að samskipti Japans við Vesturlönd eru töluvert frábrugðin samskiptum Kína og Vesturlanda. Stöðin og jörðin eru í eigu íslensku sjálfseignarstofnunarinnar Aurora Observatory en Heimskautastofnun Kína leigir þær og rekur til 99 ára. Ekkert sérstakt mat fór fram á starfseminni með tilliti til þjóðaröryggis á sínum tíma.
Vináttuvotturinn skilaði sínu. Fríverslunarsamningurinn var undirritaður í apríl 2013 og Ísland varð þar með fyrsta Evrópuríkið til að skrifa undir fríverslunarsamning við Kína. Hann kom til framkvæmda 1. júlí 2014.
Í erlendum fjölmiðlum er því reglulega haldið fram að Kína hafi „keypt upp“ norðurslóðir með gífurlegu flóði fjárfestinga. Fjárfestingarnar sem tíðrætt var um urðu þó fæstar að veruleika, hvort sem litið er til svæðisins alls eða Íslands eingöngu.
Við kortlagningu okkar Anders Edstrøm og P. Whitney Lackenbauer á kínverskum fjárfestingum á norðurslóðum öllum kom í ljós að aðeins lítill hluti þeirra fjárfestinga sem lagt var upp með hefur orðið að veruleika. Á Íslandi má nefna að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC fékk ásamt Petoro og Eykon Energy leyfi til olíuleitar á Drekasvæðinu árið 2014 en verkefninu var hætt 2018. Stórskipahöfn í Finnafirði var rædd við kínverska aðila 2011 og 2012 en varð aldrei að samstarfsverkefni við þá. Eina beina kínverska fjárfestingin á Íslandi varð þegar Geely Group keypti hlut í Carbon Recycling International árið 2015 fyrir 45,5 milljónir bandaríkjadala, auk þess sem járnblendiverksmiðjan á Grundartanga komst óbeint í kínverska eigu þegar China Bluestar Corporation keypti norska móðurfélagið Elkem 2011. Því er ekki um gífurlegar kínverskar fjárfestingar að ræða, heldur standa eftir rannsóknarstöð og fríverslunarsamningur.
Norðurslóðasamvinna Íslands og Kína verður ekki aðskilin með skýrum hætti frá efnahagssamskiptum ríkjanna, enda hafa þessi tvö svið þróast samhliða. Hagsmunir Kína á norðurslóðum eru margþættir og koma þar saman efnahagslegir og strategískir hagsmunir.
Hagsmunir Kína á norðurslóðum
Hvers vegna hefur Kína yfir höfuð áhuga á norðurslóðum? Ein ástæðan er loftslagsbreytingar. Frá 1979 hefur hlýnað nærri fjórfalt hraðar á norðurslóðum en á jörðinni að meðaltali og kínversk stjórnvöld benda sjálf á að þær breytingar hafi bein áhrif á veðurfar í Kína og þar með á landbúnað, skógrækt og sjávarútveg.
Önnur ástæða er efnahagsleg. Áætlað er að um 30% af ófundnum og vinnanlegum jarðgasauðlindum heims sem og 13% af slíkri olíu sé að finna á svæðinu. Jafnframt má áætla að með hlýnun loftslags muni fiskitegundir leita sífellt norðar.
Þriðja ástæðan er opnun nýrra siglingaleiða, eins og áætlunarsiglingin sem hófst nú í sumar sýnir. Veðurfar á svæðinu er þó óútreiknanlegra en áður og áhyggjur af leit og björgun meðfram norðausturleiðinni hækka tryggingakostnað skipafélaga. Það hefur haldið aftur af skipaumferð þrátt fyrir að rússnesk stjórnvöld vilji gera norðausturleiðina að alþjóðlegri flutningaæð.
Aðgengi að fleiri siglingaleiðum er forgangsatriði fyrir kínverska kommúnistaflokkinn til að tryggja að útflutningur geti haldið áfram ef aðrar leiðir lokast, til að mynda Malakkasund. Lokun Hormússunds eykur auk þess mikilvægi siglinga um norðurslóðir, þó þær séu enn takmarkaðar.
Lykilhagsmunir kínverska kommúnistaflokksins eru þó pólitískir: að litið sé á Kína sem hagsmunaaðila á svæðinu. Sem dæmi titlaði Kína sig sem „nærríki norðurslóða“ (Jin Beiji Guojia 近北极国家) í stefnu sinni, tilkynnti að innviða- og fjárfestingaverkefnið Belti og braut næði nú til norðurslóða um svokallaðan Silkiveg á ís (Bingshang Sichou Zhilu 冰上丝绸之路), auk þess sem Xi Jinping hefur staðhæft að Kína muni verða heimskautastórveldi (Jidi Daguo 极地大国).
Öryggisógn eða skaðlaus samstarfsaðili?
Umræðan um Kína sem öryggisógn virðist oftast vera á þá vegu að annaðhvort sé öryggisógnin sem okkur stafar af Kína svo mikil að við ættum að takmarka öll samskipti við ríkið, eða þá að um enga ógn sé að ræða, Kína sé einfaldlega vinaríki. Það er afar ólíklegt að Kína muni eiga í beinum hernaðarlegum átökum á norðurslóðum á næstu árum. Samstarf Kína og Rússlands á svæðinu er heldur ekki takmarkalaust, þótt ríkin tvö lýsi því þannig. Rannsókn okkar Baldurs Þórhallssonar sýnir að það er drifið áfram af breyttu valdajafnvægi gagnvart Bandaríkjunum, en að valdajafnvægið á svæðinu sjálfu, efnahagslegir hagsmunir Kína á Vesturlöndum og aðstæður innan rússneska norðursins setja því skorður. Það er hins vegar ekki svo að ógnin sem Íslandi stafi af Kína sé engin. Þar vega fjölþáttaógnir þungt.
Kínversk skip hafa til að mynda ítrekað slitið sæstrengi með akkerum sínum. Í maí 2026 handtók norska öryggislögreglan kínverskan ríkisborgara, grunaðan um aðild að tilraun til að setja upp móttökustöð fyrir gervihnattagögn á Andøya og Kína heldur Rússlandi á floti efnahagslega, sem styður við innrásarstríð þess í Úkraínu. Auk þess eiga Kína og Rússland í stöðugt fleiri sameiginlegum heræfingum á sjó og í lofti nærri ströndum Alaska.
Aukin athygli á fjölþáttaógnum hefur leitt til dýpri umræðu um kínverskar rannsóknir og þá hvort tvíþætt notagildi þeirra réttlæti að þær séu takmarkaðar á svæðinu. Bandaríska strandgæslan og kanadíski sjóherinn fylgdu til að mynda kínverska Snædrekanum eftir í tæpan mánuð í sumar, í leiðangri þar sem rannsóknarskipið fleytti út rúmlega 30 baujum. Tvö dæmi eru oftast nefnd sem mögulegar öryggisógnir á norðurslóðum: rannsóknarstöð Kína á Svalbarða og rannsóknarstöðin á Kárhóli. Þá eru kínverskar rannsóknir stundum sagðar vera meðal helstu mögulegu leiða kínverskra stjórnvalda til að safna upplýsingum í njósnaskyni og yfirmaður öryggis- og greiningarsviðs ríkislögreglustjóra sagði njósnir Kínverja á Íslandi vera viðkvæmt mál og vísaði sérstaklega til rannsóknarstöðvarinnar á Kárhóli. Hér legg ég ekki mat á hvort rannsóknarstöðin sé notuð til njósna. Hins vegar er ljóst að grunsemdir um njósnir eru langlífar og gætu verið nýttar til að þrýsta á Ísland í tengslum við samskipti Íslands við Kína.
Kortlagning íslenskra hagsmuna nauðsynleg
Ísland hefur mikilla hagsmuna að gæta í samskiptum við Kína. Frá því að fríverslunarsamningurinn tók gildi hefur útflutningsverðmæti íslenskra vara margfaldast og var árið 2025 metár: samkvæmt Hagstofunni nam vöruútflutningur til Kína 25,4 milljörðum króna, um 28% meira en árið á undan. Það eru þó aðeins tæp 3% af heildarverðmæti vöruútflutnings landsins. Helstu útflutningsvörur okkar til Kína eru sjávarafurðir, en aukning er í útflutningi snyrtivara, heilsuvara og áls. Innflutningurinn vegur þyngra. Sama ár keypti Ísland vörur frá Kína fyrir 166 milljarða króna, einkum bifreiðar, hjólbarða og raftæki. Það eru um 12% af öllum vöruinnflutningi og Kína varð þar með stærsta innflutningsland Íslands, á undan Noregi. Hæði Íslands liggur því að mestu innflutningsmegin.
Eftir að tollastefna Trump-stjórnarinnar hófst hafa bæði Evrópuríki og Kanada leitað í auknum mæli til Kína til að styrkja efnahag sinn. Þessi þróun á sér stað þrátt fyrir að NATO hafi kallað Kína „afgerandi stuðningsaðila“ við innrás Rússlands í Úkraínu. Því er ljóst að efnahagslegir hagsmunir vega hér hátt. Auk þess er nauðsynlegt að vinna með Kína áfram til að sporna gegn loftslagsbreytingum. Ísland og Kína hafa til að mynda átt í góðu samstarfi um nýtingu jarðvarma í Kína. Kína er, líkt og Ísland, aðili að samningnum um að koma í veg fyrir stjórnlausar úthafsveiðar í miðhluta Norður-Íshafsins, sem tók gildi 2021 og bannar veiðar í atvinnuskyni þar til vísindaleg þekking liggur fyrir.
Þrýstingurinn er þegar kominn
Ísland hefur þegar orðið fyrir þrýstingi Bandaríkjanna vegna samskipta Íslands við Kína. Þegar Mike Pence, þáverandi varaforseti Bandaríkjanna, kom til Reykjavíkur í september 2019 þakkaði hann Íslendingum fyrir að hafa hafnað þátttöku í Belti og braut. Það höfðu íslensk stjórnvöld þó ekki gert og utanríkisráðherra sagði ummælin ekki alveg nákvæm.
Kárhóll er þegar orðinn að ágreiningsefni. Í október 2024 skrifuðu formaður Kínanefndar fulltrúadeildar Bandaríkjaþings og oddviti minnihlutans í nefndinni varnarmála- og utanríkisráðherrum Bandaríkjanna, sögðu stöðina virðast sinna rannsóknum með tvíþætt notagildi og lögðu til að Bandaríkin hvettu íslensk stjórnvöld til að láta fara fram þjóðaröryggisrýni á rannsóknum kínverskra vísindamanna hér á landi og aðstoðuðu þau við hana. Fríverslunarsamningurinn gæti orðið næstur. Þetta setur Ísland í erfiða stöðu vegna mikilvægis samstarfs Íslands og Bandaríkjanna í öryggis- og varnarmálum, á sama tíma og mikilvægt er að standa vörð um fullveldi Íslands og réttinn til að móta sína eigin stefnu.
Þetta undirstrikar mikilvægi þess að íslensk stjórnvöld hafi fyrir fram skilgreint eigin hagsmuni, markmið og mörk í samskiptum við Kína, fremur en að stefna Íslands mótist fyrst og fremst sem viðbragð við þrýstingi frá öðrum stórveldum. Líkur eru á að þrýstingurinn aukist og að Ísland verði, líkt og önnur Evrópuríki, beðið um að takmarka samskipti sín við Kína. Því er mikilvægt að hafa kortlagt hagsmuni okkar og hvar rauða línan liggur áður en til þess kemur.
Ísland þarf stefnu gagnvart Kína
Ísland á enga opinbera stefnu gagnvart Kína. Þjóðaröryggisstefnan nefnir Kína ekki á nafn, og lög um rýni á erlendum fjárfestingum voru fyrst samþykkt í júní 2026 og taka ekki gildi fyrr en í ársbyrjun 2027.
Ég legg því til að utanríkisráðherra, í samráði við þjóðaröryggisráð, leggi tillögu til þingsályktunar um stefnu Íslands gagnvart Kína fyrir Alþingi á vorþingi 2027, líkt og gert var með norðurslóðastefnuna 2021 og stefnuna í varnar- og öryggismálum 2026, og að stefnan verði birt. Slík stefna þyrfti að ná yfir marga þætti. Í fyrsta lagi efnahagslega: nauðsynlegt er að kortleggja hvar efnahagsleg tækifæri Íslands í samskiptum við Kína liggja, hvaða iðnað og þjónustu þyrfti að styðja til að ná á kínverskan markað og hvernig hægt er að laða að fleiri kínverska ferðamenn.
Í öðru lagi þarf stefnan að segja hvernig nýju lögunum um rýni á erlendum fjárfestingum verður beitt. Við Egill Þór Níelsson lögðum til árið 2020 að ferlið í kringum fjárfestingar utan EES yrði endurskoðað og rýni tekin upp að norrænni fyrirmynd. Sex árum síðar voru lög þess efnis samþykkt. Kínverskar fjárfestingar á Íslandi eru þó, líkt og fyrr segir, afar takmarkaðar. Lögin ná til mikilvægra innviða og viðkvæmra sviða en ekki til almennra jarðakaupa og annað Nubo-mál félli því áfram undir eldri löggjöf um eignarhald á fasteignum. Stefnan þarf að svara því hvort það dugar. Svarið við því næði til fleiri ríkja en Kína.
Í þriðja lagi þarf að kortleggja hæði Íslands af kínverskri tækni, meðal annars í fjarskiptum og netöryggi. Hér er dýpri rannsókn nauðsynleg til að greina hvaða áhrif það hefði ef til innrásar Kína í Taívan kæmi og áhrif þess á hálfleiðara og aðfangakeðjur.
Í fjórða lagi ætti að meta rannsóknarstöðina á Kárhóli með tilliti til þjóðaröryggis. Formlegt mat hefur aldrei farið fram og ekkert ferli er til sem kallar á það. Slíkt mat styrkir stöðina sjálfa, sem gæti þá vísað til þess að hún hafi staðist það, og það styrkir íslensk stjórnvöld ef erlend ríki nota stöðina til að beita þrýstingi. Rammi um þjóðaröryggisrýni mætti undir engum kringumstæðum vera misnotaður gegn rannsóknum og akademísku frelsi. Tengsl vísindafólks voru enda mikilvægur þráður í samskiptum fólks á andstæðum pólum í kalda stríðinu. Til að tryggja það þarf ramminn að hvíla á skýrum viðmiðum í lögum, vera í höndum óháðs aðila og veita rétt til andmæla. Þannig verndar hann bæði öryggi og akademískt frelsi.
Í fimmta lagi þarf reglulegt mat á því hvernig kínversk umsvif á norðurslóðum þróast og hvaða áhrif það hefur á hagsmuni Íslands. Að lokum þarf að vera stefna um hvernig á að bregðast við þrýstingi stórvelda hvað varðar samskipti Íslands við önnur ríki.
Svíþjóð og Finnland hafa til að mynda mótað og gefið út sérstaka stefnu um samskipti sín við Kína út frá sínum eigin hagsmunum, og Noregur og Danmörk fjalla um Kína í öryggisstefnum sínum. Ísland hefur hvorugt. Ekkert þessara ríkja ætlar að loka á samskiptin við Kína þrátt fyrir aukna samkeppni þess við Evrópu, viðskiptahagsmunirnir og nauðsyn þess að vinna saman í loftslagsmálum eru einfaldlega of miklir. Hins vegar hafa ríkin ákveðið að takmarka samskipti sín við Kína upp að mismiklu marki á mismunandi sviðum.
Sænska stefnan er til að mynda töluvert gagnrýnni en sú finnska, á meðan ítarlega er farið í samskiptin við Kína í þjóðaröryggisstefnu Noregs. Ísland ætti því að gera slíkt hið sama: meta eigin hagsmuni, læra af nágrannaþjóðunum og gefa stefnuna út.
Að birta stefnuna opinberlega myndi auka gegnsæi og fyrirsjáanleika sem og samræmingu innan stjórnkerfisins. Stefnan gæfi öðrum ráðuneytum, sveitarfélögum, fyrirtækjum, háskólasamfélaginu og jafnvel almenningi viðmiðunarramma. Hún væri sömuleiðis mikilvæg vegna þess að samskipti við Kína snúast ekki einungis um viðskipti, heldur líka fjarskipti, mikilvæga innviði og þjóðaröryggi. Opinber stefna hefði auk þess boðskiptagildi og legði áherslu á hvaða málefni eru Íslandi mikilvæg.
Vitum hvert við stefnum
Ísland er sjálfstætt og fullvalda ríki. Alþjóðasviptingar hafa ávallt átt sér stað og munu ávallt gera það. Við þurfum sjálf að vera við stýrið og því er mikilvægt að vera ekki einungis í viðbragðsstöðu heldur að vera með áætlun, að vera með stefnu.
Markmiðið með stefnu gagnvart Kína ætti ekki að vera að takmarka samskiptin, heldur að hámarka ávinning fyrir íslenska hagsmuni og halda áhættu í lágmarki. Ef við viljum vera leiðandi ríki á norðurslóðum þurfum við að gera meira en að ræða um hlutina. Við þurfum að geta tekist á við erfiðu hliðarnar sem snerta breytt alþjóðakerfi. Því ættum við að læra af Norðurlöndunum.
Hvorki Bandaríkin né Rússland munu hverfa frá norðurslóðum. Kína mun heldur ekki hörfa ef kínversk stjórnvöld halda stefnu sinni áfram. Ísland stendur því frammi fyrir fjölmörgum ákvörðunum um samskipti sín við þessi stórveldi á næstu árum. Því er mikilvægt að halda dampi og að vera ekki stefnulaus. Fyrsta skrefið er á valdi utanríkisráðherra: að leggja fram stefnu um samskipti við Kína fyrir Alþingi og birta hana.