Tímarit Vörðu · 1. tölublað · Júní 2026

Inngangsorð

Tímarit Vörðu er gefið út í því skyni að skapa vettvang fyrir upplýsta og málefnalega umræðu um þjóðaröryggi á Íslandi. Þetta er líklega fyrsta viðleitni til útgáfu á tímariti hérlendis sem einblínir á þessi málefni, og eftir því sem næst verður komist, hið fyrsta sem fjallar alfarið um alþjóðamál.

Útgáfa prentaðra blaða og tímarita er á miklu undanhaldi um þessar mundir. Hví þá að hefja slíka útgáfu eins og hér er kynnt til sögunnar? Svar okkar er að þrátt fyrir mikla kosti annars konar miðlunar þá hafi prentútgáfa á vönduðum pistlum, greinum og ritgerðum mikla sérstöðu og kosti sem ekki verður við jafnað með öðrum leiðum. Við teljum að vel ígrunduð hugsun um flókin viðfangsefni þarfnist þeirrar yfirlegu og vandvirkni sem best er komið á framfæri í rituðu máli.

Með útgáfu sem þessari er gerð tilraun til að hægja ögn á hraða skoðanaskipta í því skyni að koma dýpri og yfirgripsmeiri þekkingu á framfæri og leyfa umræðunni þannig að þroskast betur heldur en með snöggsoðnum yfirlýsingum og yfirborðskenndum átökum á samfélagsmiðlum þar sem reiknirit stjórna takti umræðunnar.

Tímasetningin skiptir máli. Frá því að Ísland varð lýðveldi hafa þjóðaröryggismál verið nánast ósýnileg í opinberri umræðu fyrir utan átökin um aðild okkar að Atlantshafsbandalaginu. Þessi þögn um þjóðaröryggismál hefur þó ekki stafað af sinnuleysi, heldur af þeirri þægilegu staðreynd að á lýðveldistímanum öllum hefur ríkt sátt og stöðugleiki kringum þá fullvissu að engin raunveruleg utanaðkomandi ógn gæti steðjað að Íslandi. Við höfum lifað tíma þar sem frjálslynd lýðræðisríki Vesturlanda hafa verið bundið fastmælum um að standa saman um að vernda hvert annað á grundvelli virðingar fyrir stofnsáttmála Sameinuðu þjóðanna.

Landvinningastríð Rússlands í Úkraínu hefur gjörbreytt öryggismati Evrópuríkja. Til viðbótar hefur orðræða helstu stórvelda heims gjörbreyst hvað varðar mikilvægi þeirra alþjóðalaga og alþjóðastofnana sem hafa haldið í skefjum hugmyndum ríkja um útþenslu landamæra og kúgunar í krafti vopnavalds.

Með öðrum orðum, þá kunna að vera runnir upp tímar þar sem ýmsar forsendur sjálfstæðis og fullveldis friðsamra ríkja virðast vera að veikjast. Þessar breytingar gefa ekki bara tilefni til að Íslendingar fari að taka öryggis- og varnarmál alvarlegar en nokkru sinni fyrr. Þær krefjast þess.

Varða, útgefandi þessa tímarits, er sjálfstæð hugveita sem stofnuð er til að auka þekkingu og umræðu um þjóðaröryggi. Í tímaritinu verður ekki gert upp á milli ólíkra hugmynda og mismunandi nálgunar á viðfangsefnið. Við vonumst eftir því að sérfræðingar, fræðafólk, stjórnmálafólk og upplýst áhugafólk um málaflokkinn muni sjá kosti þess að gera tímaritið að vettvangi sínum. Ritstjórnin mun gera þá kröfu að greinar séu vel ígrundaðar, lýsi raunverulegri skoðun höfundar, séu rökfastar og byggi á reynslu eða góðum heimildum. Við gerum ekki ráð fyrir að lesendur muni vera sammála öllu í tímaritinu.

Þetta fyrsta tölublað hefur yfirskriftina „Verðugur bandamaður“ og vísar til þess hugtaks sem fyrrverandi utanríkisráðherra hefur ítrekað notað til þess að lýsa þeirri trú að Íslendingar þurfi að leggja það af mörkum í varnar- og öryggissamstarfi við aðrar þjóðir; að við verðum ekki bara farþegi heldur verðmætur þátttakandi í að verja frelsi, fullveldi og mannréttindi í samstarfi við bandamenn okkar og vini.

Við þökkum höfundum greina í blaðinu fyrir sitt framlag.

Kristinn Árni L Hróbjartsson, meðstofnandi Vörðu og ritstjóri Tímarits Vörðu

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, gestaritstjóri fyrstu útgáfu Tímarits Vörðu