Inngangsorð

Tímarit Vörðu er tilraun til að bæta við vettvangi umræðu um öryggi, varnir og viðnámsþrótt Íslands. Markmiðið er að sérfræðingar, fræðifólk, stjórnmálafólk og aðrir með ígrundaðar skoðanir á málaflokknum geti lagt orð í belg og þroskað umræðuna.

Breytt staða og ábyrgð Íslands í kjölfar breyttrar heimsmyndar gerir upplýsta umræðu um málaflokkinn mikilvægari en áður. Á sama tíma hefur opinber umræða breyst – oftar en ekki til hins verra. Umræðan snýst í kringum styttri og grynnri hugmyndir sem jafnvel miða meira að því að ná hylli reiknirita samfélagsmiðla til að auka dreifingu, en að dýpka opinbert samtal og komast að betri niðurstöðu.

Varða er sjálfstæð hugveita sem byggir á þeim grunni að öryggishagsmunir Íslands þarfnist aukinnar þekkingar og umræðu um málaflokkinn en hefur ekki aðrar fyrirfram ákveðnar skoðanir. Tímaritið mun ekki hampa skoðunum umfram aðrar heldur vera vettvangur fyrir lengri rökræður og skoðanaskipti. Ritstjórnin mun gera þá kröfu að greinar séu vel ígrundaðar, lýsi raunverulegri skoðun höfundar, séu rökfastar og byggi á reynslu eða góðum heimildum. Við gerum ekki ráð fyrir að lesendur muni vera sammála öllu í tímaritinu.

Í þessari fyrstu útgáfu er viðfangsefnið Verðugur bandamaður. Þar vísum við til orða sem fyrrverandi utanríkisráðherra, meðlimur í ráðgjafaráði Vörðu og gestaritstjóri fyrstu útgáfu Tímaritsins Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, hefur oft notað um sína sýn á hvert Ísland ætti að stefna – það dugi ekki lengur að vera farþegi, við þurfum að sýna okkar virði í bandalagi frjálsra þjóða.

Við þökkum höfundum greina í blaðinu fyrir sitt framlag.

Kristinn Árni L Hróbjartsson, meðstofnandi Vörðu og ritstjóri Tímarits Vörðu

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir, gestaritstjóri fyrstu útgáfu Tímarits Vörðu