Tímarit Vörðu · 2. tölublað · Október 2026

Leiðandi á norðurslóðum

Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra sagði í byrjun október 2025 að hún vildi að Ísland gegndi leiðandi hlutverki í þróun varna og viðskipta á norðurslóðum. Ummælin féllu að loknum leiðtogafundi Stjórnmálasamfélags Evrópu í Kaupmannahöfn: „Við viljum auðvitað eiga í samstarfi en fyrst og fremst vera leiðandi á okkar svæði.“

Í því samhengi báðum við höfunda um að skrifa út frá þeirri hugmynd: að Ísland sé, eða geti verið, leiðandi á norðurslóðum. Hvað þýðir það fyrir okkur?

Svörin í þessu tölublaði eru í grófum dráttum þrenns konar. Í fyrsta lagi benda höfundar á svið þar sem Ísland gæti leitt. Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, víkkar sviðið út fyrir varnir og viðskipti og fjallar um veikingu veltihringrásar Atlantshafsins sem þjóðaröryggismál. Bryndís Haraldsdóttir og Heiðar Guðjónsson sjá tækifæri í nánari tengslum við Grænland og Færeyjar.

Í öðru lagi er fjallað um það sem forysta útheimtir. Ísak Einar Rúnarsson bendir á að samgöngur og flutningar séu forsenda alls annars. Bjarni Már Magnússon minnir á að viðbúnaður sé ekki síður á ábyrgð sveitarfélaga en ráðuneyta. Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir færir rök fyrir því að Ísland þurfi eigin stefnu gagnvart Kína áður en aðrir móti hana fyrir okkur.

Í þriðja lagi kemur sjónarhorn utan frá. Cecilie Willoch, sendiherra Noregs á Íslandi, lýsir því hvernig bandalagsríki sem þegar ber þungar byrðar á svæðinu hagar málum sínum.

Ár er liðið síðan forsætisráðherra lýsti þessari sýn sinni. Höfundar þessa tölublaðs Tímarits Vörðu velta upp nokkrum leiðum til að hún verði að veruleika.

Við þökkum höfundum fyrir framlag þeirra.

Kristinn Árni L. Hróbjartsson, meðstofnandi Vörðu og ritstjóri Tímarits Vörðu.