Tímarit Vörðu · 2. tölublað · Október 2026 · 02

Næstu nágrannar á Norðurslóðum

Þegar ég settist fyrst á Alþingi haustið 2016 hafði ég tekið fram við formann þingflokksins að ég sæktist ekki sérstaklega eftir verkefnum á alþjóðavettvangi. Mér fannst meira en nóg að læra inn á Alþingi og íslensk stjórnmál. Örlögin höguðu því þó þannig að eitt fyrsta alþjóðlega verkefnið sem mér var falið var að sitja í Íslandsdeild Vestnorræna ráðsins, samstarfsvettvangi þingmanna Íslands, Grænlands og Færeyja. Ég hafði þá aldrei komið til Grænlands eða Færeyja og hugsaði með mér að þetta gæti að minnsta kosti orðið áhugavert.

Það reyndist vægt til orða tekið. Tæpum áratug síðar er ég sannfærð um að öflugra vestnorrænt samstarf eigi að verða einn af hornsteinum norðurslóðastefnu Íslands. En sú stefna má ekki verða almenn yfirlýsing um aukið samstarf sem allir eru sammála um en enginn framkvæmir. Ég legg til tvennt.

Í fyrsta lagi á Ísland að taka sér forystuhlutverk í því að Grænland, Færeyjar og Álandseyjar fái fulla og jafna aðkomu að formlegu norrænu samstarfi, bæði í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni, með þeirri endurskoðun Helsingforssamningsins sem nú er hafin. Í öðru lagi á Ísland að ljúka gerð viðskiptasamnings við Grænland á þessu kjörtímabili. Þó við horfum áfram til Washington, Brussel og höfuðborga Norðurlandanna eigum við líka að líta okkur nær.

Ég varð forseti Vestnorræna ráðsins árið 2017. Sama ár náðist mikilvægur áfangi þegar ráðið fékk áheyrnaraðild að Norðurskautsráðinu. Helsta röksemd okkar var einföld: þar býr fólk. Norðurslóðir eru ekki aðeins hafís, auðlindir, siglingaleiðir, fiskistofnar, hernaðarleg staða eða línur á korti. Þar býr fólk sem vill byggja sér og börnum sínum gott samfélag. Sjálfbær þróun Norðurslóða snýst þess vegna ekki bara um vernd náttúrunnar, þótt hún sé mikilvæg. Hún snýst líka um öflug samfélög, atvinnu, menntun, heilbrigðisþjónustu, samgöngur, fjarskipti og möguleika fólks til að nýta auðlindir lands og sjávar með ábyrgum hætti. Og þau sem búa á Norðurslóðum eiga sjálf að hafa sterka rödd þegar ákvarðanir eru teknar um framtíð svæðisins. Þessi hugsun hefur fylgt mér síðan.

Heimurinn breyttist, landafræðin ekki

Þegar Thorvald Stoltenberg, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, skilaði skýrslu sinni um norrænt samstarf í utanríkis- og öryggismálum árið 2009 var ein tillagna hans helguð Norðurslóðum. Þegar farið var yfir tillögurnar tíu árum síðar var niðurstaðan athyglisverð: samstarfið hafði vissulega aukist, en fyrst og fremst innan Norðurskautsráðsins. Ef Norðurskautsráðið hætti einhvern tíma að virka, bentu höfundar endurmatsins á, gæti opnast rými fyrir sérstakt norrænt framtak.

Aðeins þremur árum síðar réðst Rússland inn í Úkraínu og allt pólitískt samstarf innan Norðurskautsráðsins stöðvaðist. Finnland og Svíþjóð gengu í NATO og nú eru sjö af átta ríkjum Norðurslóða aðilar að Atlantshafsbandalaginu. Rússland hefur sýnt að það er tilbúið að virða að vettugi fullveldi nágrannaríkis og grundvallarreglur alþjóðalaga, Kína hefur aukið áhuga sinn á svæðinu og spennan hefur vaxið hratt. Spurningin sem Stoltenberg-endurmatið skildi eftir er því orðin áleitin: tíminn fyrir sérstakt norrænt framtak á Norðurslóðum er kominn, og vestnorræna samstarfið á að vera kjarninn í því.

Landafræðin minnir á hvers vegna. Í síðari heimsstyrjöldinni tóku Bretar Ísland og Færeyjar og Bandaríkin tóku að sér varnir Grænlands. Það voru engar tilviljanir. GIUK-hliðið, hafsvæðið milli Grænlands, Íslands og Bretlands, var og er eitt mikilvægasta varnarsvæði Norður-Atlantshafsins. Björn Bjarnason orðaði þessa einföldu staðreynd vel í skýrslu sinni til norrænu utanríkisráðherranna árið 2020: „The geography today is the same.“ Stjórnmál breytast, ríkisstjórnir koma og fara, tækni og ógnir breytast. Landafræðin gerir það ekki. Bandaríkin, Bretland og NATO, sem nú hefur með Arctic Sentry sett starfsemi sína á Norðurslóðum í heildstæðari ramma, sjá öll fyrir sér svæði þar sem Grænland, Ísland og Færeyjar skipta höfuðmáli. Það er full ástæða fyrir þjóðirnar þrjár að gera slíkt hið sama.

Bandaríkin hafa augljósa og langvarandi öryggishagsmuni í Grænlandi. Sú staðreynd réttlætir á engan hátt ásælni Donald Trumps gagnvart Grænlandi eða orðræðu hans um landið. Hún er óafsakanleg. Bandamenn eiga ekki að tala þannig hver við annan. Samstarf lýðræðisríkja byggist ekki aðeins á sameiginlegum hernaðarlegum hagsmunum heldur á trausti, samtali og virðingu fyrir alþjóðalögum og sjálfsákvörðunarrétti þjóða. Grænland er ekki auður reitur á taflborði stórveldanna. Þar býr fólk sem á sjálft að taka ákvarðanir um eigin framtíð, og ákvarðanir á að taka með Grænlendingum, ekki um þá.

Í íslenskri umræðu hefur Evrópusambandið stundum verið nefnt í þessu samhengi. EES-samningurinn hefur reynst Íslandi gríðarlega mikilvægur og Evrópuríki hafa staðið þétt með Danmörku og Grænlandi gagnvart ásælni Trumps. En greina þarf á milli efnahagslegs samstarfs og sameiginlegra varna. Evrópusambandið er ekki varnarbandalag, þótt sáttmáli þess hafi að geyma ákvæði um gagnkvæma aðstoð. NATO er sú varnarumgjörð sem Ísland hefur valið sér, ásamt varnarsamningnum við Bandaríkin frá 1951.

Fyrri tillagan: ekkert um okkur án okkar

Grænlensk stjórnvöld hafa valið sér einfalt en áhrifamikið leiðarljós í utanríkis-, öryggis- og varnarmálum: „Nothing about us without us, ekkert um okkur án okkar.“ Ég hef sjálf séð hversu djúpt þessi krafa ristir.

Á þingi Norðurlandaráðs í Ósló árið 2023 flutti Múte B. Egede, þáverandi formaður Naalakkersuisut, ræðu sem sat í mér. Hann bað okkur að ímynda okkur vinahóp átta vina sem ættu gott samfélag og ynnu vel saman. En þegar eitthvað virkilega mikilvægt gerðist fengju aðeins fimm þeirra að vera með en þrír væru skildir eftir. Þetta væri ekki vinátta jafningja. „Venner skal ikke deles op i et A-hold og et B-hold,“ sagði hann. Vinir eiga ekki að skiptast í A-lið og B-lið.

Ári síðar varð ágreiningurinn enn sýnilegri. Þegar ljóst varð að Grænlandi, Færeyjum og Álandseyjum yrði ekki boðið á fund forsætisráðherra Norðurlandanna setti Múte B. Egede pólitíska þátttöku grænlensku landstjórnarinnar í norrænu samstarfi á ís. Ísland fór það ár með formennsku í Norðurlandaráði og ég var forseti ráðsins. Málið varð eitt mikilvægasta verkefni formennskunnar. Ég fór ásamt Oddnýju Harðardóttur varaforseta og framkvæmdastjóra ráðsins til Grænlands til viðræðna, og á þingi Norðurlandaráðs í Reykjavík um haustið samþykkti ráðið samhljóða að kalla eftir endurskoðun Helsingforssamningsins, grundvallarsamnings hins formlega norræna samstarfs.

Á þinginu í Stokkhólmi árið 2025 blasti mótsögnin enn við. Fyrir utan þinghúsið blöktu átta þjóðfánar og í þingsalnum sátu þingmenn frá öllum átta löndum norrænu fjölskyldunnar. En ríkisstjórnirnar voru aðeins sjö. Ég spurði Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, hvenær hún teldi að hægt yrði að breyta Helsingforssamningnum og hvenær við fengjum grænlenska ráðherra aftur með okkur í salinn. Svar hennar var skýrt: „Vi er i mine øjne otte lande, som udgør et Norden.“ Í hennar augum væru Norðurlöndin átta.

Árið 2026 ákváðu norrænu samstarfsráðherrarnir síðan að setja á laggirnar nefnd til að vinna að mögulegum breytingum á samningnum en tillögunum á að skila fyrir þing Norðurlandaráðs nú í haust. Þar á Ísland ekki að sitja hjá og bíða niðurstöðu. Við leiddum málið í formennskutíð okkar og eigum að leiða það áfram: tala skýrt fyrir því að endurskoðuninni ljúki með fullri og jafnri aðkomu Grænlands, Færeyja og Álandseyja að formlegu norrænu samstarfi. Ekkert norrænt ríki stendur nær Grænlandi og Færeyjum en Ísland, og ekkert þeirra hefur ríkari hagsmuni af því að vestnorrænu nágrannarnir sitji við borðið sem jafningjar. Þessi saga skiptir enda máli langt út fyrir Norðurlandaráð. Hún endurspeglar stærri breytingu á Norðurslóðum: samfélög svæðisins gera ríkari kröfu um beina aðkomu að ákvörðunum um eigin framtíð. Og þar standa löndin þrjú þegar á sameiginlegum grunni. Grænlensk utanríkisstefna leggur ríka áherslu á að Grænland sitji sjálft við borðið, færeyska norðurslóðastefnan frá 2022 segir vestnorræna samstarfið gegna einstöku hlutverki, og Alþingi ályktaði strax árið 2011, án mótatkvæða, að efla samstarf við Færeyjar og Grænland til að auka hag og pólitískt vægi landanna þriggja. Árið 2021 samþykkti það síðan samhljóða norðurslóðastefnu sem leggur áherslu á aukin viðskipti og samstarf við næstu nágranna okkar á Grænlandi og í Færeyjum. Okkur hefur ekki skort stefnu, skýrslur eða hugmyndir. Okkur hefur skort aðgerðir.

Aðgerðirnar sem þegar virka

Landfræðileg nálægð tryggir ekki náin samskipti. Til þess þarf fólk að geta ferðast milli landanna, fyrirtæki að geta flutt vörur og þjónustu og samfélögin öruggar fjarskiptatengingar. Bestu dæmin um vestnorrænt samstarf í framkvæmd eru einmitt af þessum toga. Ekki nýjar stofnanir eða nefndir, heldur aðgerðir sem auðvelda fólki að vinna saman.

Á Arctic Circle Assembly í Reykjavík árið 2024 undirritaði Icelandair samstarfssamninga við Air Greenland og Atlantic Airways um að tengja leiðakerfi félaganna betur. Ný flugvallauppbygging á Grænlandi hefur þegar breytt forsendum verulega, og betri flugsamgöngur skapa ekki aðeins tækifæri fyrir ferðamennsku heldur fyrir viðskipti, rannsóknir, nám og heilbrigðisþjónustu. Í ferðaþjónustunni sameinar Vestnorden-kaupstefnan fyrirtæki landanna þriggja, sem geta boðið ferðamanni sem kemur langt að tvö eða jafnvel öll löndin í sömu ferð. Færeyjar sýna hvað betri tengingar geta gert og hafa talað opinskátt um að þar hafi verið horft til reynslu Íslands, bæði þess sem vel tókst og mistaka sem forðast skyldi.

Og við eigum fordæmi um hvað sterkari umgjörð um viðskipti getur skilað. Hoyvíkursamningurinn við Færeyjar er víðtækasti fríverslunarsamningur sem Ísland hefur gert og frá gildistöku hans hafa viðskipti milli landanna aukist mikið. En áhugaverðasta niðurstaðan er ekki aukningin sjálf. Í formála skýrslu um samskipti landanna frá 2021 bendir Guðlaugur Þór Þórðarson, þáverandi utanríkisráðherra, á að viðskiptasamningar geti verið eitt sterkasta aflið til að auka skilning milli fólks, efla traust og skapa grundvöll fyrir samvinnu á öðrum sviðum. Viðskipti eru ekki aðeins krónur og aurar. Þau skapa tengsl, kalla á samgöngur og fjarskipti og skapa gagnkvæma hagsmuni sem skipta máli þegar á reynir. Við Íslendingar gleymum því ekki að þegar fjármálakerfið hrundi árið 2008 voru Færeyingar fyrstir til að rétta okkur hjálparhönd.

Síðari tillagan: viðskiptasamningur við Grænland

Þess vegna er hin aðgerðin sem ég legg til viðskiptasamningur milli Íslands og Grænlands, og honum á að ljúka á þessu kjörtímabili. Grunnvinnan liggur fyrir. Starfshópur um samstarf landanna skilaði fjölda tillagna árið 2020, skýrslan Norðurljós lagði til nútímalega umgjörð um viðskipti árið eftir og árið 2022 undirrituðu forsætisráðherrar landanna víðtæka samstarfsyfirlýsingu í tengslum við Arctic Circle í Reykjavík. Í október 2025 endurnýjuðu Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jens-Frederik Nielsen, formaður Naalakkersuisut, yfirlýsinguna og hétu því að hraða vinnu að viðskiptasamningi. Það sem vantar eru ekki fleiri skýrslur heldur tímasett verklok, því viðskiptasamningar snúast ekki aðeins um þau viðskipti sem þegar eru til. Þeir skapa skilyrði fyrir viðskipti sem annars hefðu aldrei orðið.

Í okkar heimshluta hafa slík tengsl líka víðari þýðingu. Nútíma þjóðaröryggi snýst ekki aðeins um herskip og ratsjár heldur um fjarskipti, hafnir, flugvelli, orku, netöryggi og sæstrengi. Ísland og Grænland eru bókstaflega tengd saman með sæstrengnum Greenland Connect og Ísland og Færeyjar með Farice. Um þessar tengingar fara samskipti sem fjármálakerfi, stjórnsýsla og heimili reiða sig á hvern dag, og röskun á þeim getur lamað samfélög án þess að einu skoti sé hleypt af. Það segir sína sögu að Vestnorræna ráðið samþykkti aðeins tvær ályktanir á ársfundi sínum árið 2025 og báðar snerust um öryggi: annars vegar samstarf landanna þriggja á því sviði, hins vegar vernd fjarskiptainnviða. Traust viðskipti, samgöngur og sameiginlegir innviðir styrkja viðnámsþrótt allra þriggja samfélaga. Þarna mætast efnahags- og öryggishagsmunir.

Að horfa nær

Ég hef mikla trú á norrænu samstarfi og tel að Norðurlöndin geti gert sig enn meira gildandi á alþjóðavettvangi sem samræmd rödd. En innan þess stóra samfélags eru minni svæði þar sem landafræði og sameiginlegir hagsmunir kalla á enn nánara samstarf. Við sem búum við Norður-Atlantshafið eigum sérstaka hagsmuni. Hafið, fiskveiðar, samgöngur, fjarskipti, orka og lega landanna móta samfélög okkar, og sagan af fánunum átta og ríkisstjórnunum sjö minnir á að jafningjasamstarf verður ekki til af sjálfu sér. Það er byggt upp með aðgerðum. Tillögurnar tvær sem hér hafa verið raktar, forysta Íslands í endurskoðun Helsingforssamningsins og viðskiptasamningur við Grænland á þessu kjörtímabili, eru hvorug stór í sniðum á mælikvarða alþjóðastjórnmála. En þær eru framkvæmanlegar, þær eru tímasettar og þær myndu breyta stöðu Vestur-Norðurlandanna í raun.

Við Íslendingar eigum áfram að horfa til Washington og Brussel og eiga náið samstarf við höfuðborgir Norðurlandanna. En við ættum líka að horfa nær. Til Grænlands og Færeyja.

Bryndís Haraldsdóttir er alþingismaður og fyrrverandi forseti Norðurlandaráðs.