Noregur á norðurslóðum: Skipting byrða í framkvæmd
Greinin var þýdd af ritstjórn Tímarits Vörðu.
Noregur liggur, bæði á landi og sjó, á milli Rússlands og Norður-Atlantshafsins. Vegna hernaðarlegrar stöðu sinnar deilir Noregur sameiginlegum örlögum með Norður-Ameríku. Jonas Gahr Støre, forsætisráðherra Noregs, hefur sagt að Noregur sé nátengdur vörnum Bandaríkjanna sjálfra.
Noregur á landamæri að Rússlandi, hefur langa strandlengju og ber ábyrgð á víðáttumiklum hafsvæðum. Norðurfloti Rússa, eldflaugakafbátar og stór hluti kjarnorkuvopnabúrs landsins eru á Kólaskaga, um 100 kílómetra handan norsku landamæranna. Þetta sama Rússland hefur skapað alvarlegasta ástand í öryggismálum frá lokum síðari heimsstyrjaldar, reynir að þurrka Úkraínu út af landakortinu, virðir alþjóðalög að vettugi og virðist sífellt stíga lengra í átt einræðis. Það hefur bein áhrif á öryggisástandið á norðurslóðum (e. High North).
Langdrægum vopnakerfum Rússa er ekki fyrst og fremst beint að Noregi eða öðrum ríkjum Skandinavíu heldur að Bandaríkjunum og Norður-Atlantshafssvæðinu í heild. Hernaðarleg staða Noregs er því einstaklega mikilvæg, bæði fyrir norðurslóðir og fyrir bandalagsríkin í NATO.
Landfræðilega legu má þó líta á bæði sem styrk og áhættu. Við Norðmenn bregðumst við aukinni áherslu á öryggisþarfir í norðri með því að efla eigin varnargetu á þann máta að hún styðji bæði við tvíhliða samstarf og sameiginlegan varnarmátt NATO. Þegar Noregur leggur fram herafla og innviði, eykur viðnámsþrótt og sýnir pólitíska staðfestu er hernaðarleg staða okkar styrkur fyrir bandalagið. Efling norskra varna er því ekki eingöngu norskt verkefni heldur fjárfesting í öryggi ríkjanna beggja vegna Norður-Atlantshafsins.
Varnarmálastefna Noregs miðar að því að landið verði órjúfanlegur hluti af sameinaðri viðbragðsgetu bandalagsríkjanna og sýni vilja og getu til að taka þátt í sanngjarnari skiptingu byrða innan NATO. Þannig getur Noregur einnig haft áhrif á stefnu bandalagsins í norðri. Að Norðmenn leggi sitt af mörkum til sameiginlegs öryggis er jafnframt eins konar trygging fyrir öryggi Noregs sjálfs.
Kröfurnar í norðri
Sameiginlegar varnir, sem kveðið er á um í 5. grein stofnsáttmála Atlantshafsbandalagsins, eru sem fyrr varanleg skuldbinding og hornsteinn öryggis Noregs. En það skiptir líka sköpum, eins og lýst er í 3. grein sáttmálans, að hvert bandalagsríki sé bæði fúst og fært um að verja eigið landsvæði, halda úti nauðsynlegum herafla og koma öðrum til aðstoðar.
Noregi er gjarnan lýst sem augum og eyrum NATO í norðri. Stöðuvitund er þar lykilatriði. Hún byggist á upplýsingum frá eftirlitsbúnaði og á getu til að greina og skilja mikilvæga þróun í landfræðilegu nágrenni Noregs. Við Norðmenn þurfum einnig að halda áfram að gæta fullveldis okkar á landi og hafi, verja mikilvæga innviði, bregðast við atvikum og styðja aðgerðir bandamanna.
Eftirlit með ferðum rússneskra kafbáta er sérlega mikilvægt framlag Noregs. Það styrkir stöðuvitund á norðurslóðum og á Norður-Atlantshafi, svæðum sem hafa grundvallarþýðingu í ljósi nálægðar Noregs við kjarnorkukafbáta Rússa. Heildarmyndin fæst ekki án kafbáta, eftirlitsflugvéla, freigáta, gervitungla og annarra skynjara.
Kröfurnar eru miklar. Noregur þarf skip sem geta verið langdvölum á hafi úti, kafbáta sem geta athafnað sig í leynd, flugvélar og skynjara sem geta vaktað víðáttumikil svæði, loftvarnir, þjálfaðan herafla, skotfæri og varin fjarskipti.
Langtímaáætlun Noregs í varnarmálum fyrir árin 2025–2036 er grunnurinn að þessu starfi. Þegar áætlunin var kynnt í apríl 2024 var í henni lagt til að útgjöld til varnarmála yrðu aukin um 600 milljarða norskra króna (um 7.700 milljarða íslenskra króna) á tólf árum og að heildarrammi útgjaldanna yrði 1.624 milljarðar norskra króna (um 20.800 milljarðar íslenskra króna). Áætluninni var ætlað að nær tvöfalda fjárveitingar til varnarmála að raunvirði fram til ársins 2036 og efla getu okkar Norðmanna á öllum þremur sviðum: á landi, í lofti og á sjó. Árið 2026 nema kjarnaútgjöld Noregs til varnarmála 3,4% af áætlaðri vergri landsframleiðslu, að meðtöldum hernaðarstuðningi við Úkraínu sem nemur 70 milljörðum norskra króna (um 900 milljörðum íslenskra króna) á árinu. Noregur stendur við skuldbindingar sínar frá leiðtogafundinum í Haag og mun ná markmiðinu um 5% (3,5% í kjarnaútgjöld til varnarmála og 1,5% í öryggismál og viðnámsþrótt í víðari skilningi) eigi síðar en árið 2035.
Fjárfestingar í sjóvörnum skipta sérstaklega miklu fyrir öryggi í norðri. Stórþingið hefur samþykkt kaup á nýjum freigátum sem búnar eru til kafbátavarna og á nýjum kafbátum. Samningar voru undirritaðir við breska framleiðendur um kaup á fimm freigátum og við Þýskaland um kaup á sex kafbátum. Langtímaáætlunin gerir einnig ráð fyrir langdrægum eftirlitsdrónum, gervitunglum, auknum loftvörnum, stærri landher, öflugri birgðastöðu og aukinni getu til að taka á móti liðsauka bandamanna.
Skipting byrða hverfist um getu, ekki hlutföll
Ákvarðanir Noregs í varnarmálum þarf einnig að skilja í víðara evrópsku samhengi. Evrópa þarf að verja meira fé til varnarmála, ekki einungis vegna þess að Bandaríkin hafa farið fram á það heldur vegna þess að öryggi Evrópu sjálfrar krefst aukinnar hernaðar- og iðnaðargetu.
Fælingarmátturinn felst þó ekki í hlutföllum heldur í getu.
Það sem ræður úrslitum er hvort Evrópuríki geti teflt fram þjálfuðum herdeildum, varið loftrými sitt og siglingaleiðir að ströndum sínum, endurnýjað skotfærabirgðir, flutt liðsauka, sinnt viðhaldi búnaðar og haldið úti aðgerðum til lengdar. Aukin útgjöld verða að skila sér í meiri viðbúnaði, stærri birgðum, traustum innviðum, aukinni iðnaðarframleiðslu og herafla sem getur starfað saman.
Öryggi Noregs veltur á því að evrópsk bandalagsríki búi yfir herafla sem hægt er að senda á norðurslóðir og beita þar. Jafnframt styrkir öflugra framlag Evrópuríkja tengslin við Norður-Ameríku. Bandaríkin fá þannig evrópska bandamenn sem geta axlað stærri hluta hefðbundinna hernaðarbyrða og lagt markvissar af mörkum til sameiginlegra varna.
Sameiginleg innkaup geta stuðlað að því að útgjöld skili sér í getu. Stærri og fyrirsjáanlegri pantanir geta stutt við framleiðslu, dregið úr óþarfa sundurleitni og skapað sameiginlega umgjörð um birgðahald og þjálfun. Markmiðið er ekki einsleitni einsleitninnar vegna heldur að herafli bandamanna nái meiri árangri saman.
Samstarf Noregs um kafbáta og freigátur sýnir hvað þetta getur þýtt í reynd. Útkoman er skip eða kafbátur, ásamt sameiginlegu viðhaldi, samhæfðum kerfum, sameiginlegri þjálfun, samræmdum uppfærslum og getu til að starfa saman allt frá upphafi hættuástands. Í hinu víðara samhengi skilar þetta skilvirkari vörnum með betri samhæfingu og auknu trausti.
Innkaup og samstarf: hvernig byrðarnar færast til
Innkaup á lykilbúnaði ætti að skoða í samhengi við víðtækari stefnumótun. Í samanburði við önnur ríki er Noregur ekki mjög stórt land. Fjöldi flugvéla, freigáta eða kafbáta sem við Norðmenn getum teflt fram er ef til vill ekki ýkja tilkomumikill einn og sér. En búnaðinn ætti ekki að skoða í einangrun frá heildarframlagi bandamanna eða heildarþörfum bandalagsins. Mannafli norska flughersins, landhersins eða sjóhersins verður heldur ekki ýkja mikill einn og sér í samanburði við önnur ríki. Getu, aðgerðir og áætlanir á að meta í ljósi skuldbindinga okkar og möguleika innan bandalagsins. Í stuttu máli snýst þetta um það sem Mark Rutte, framkvæmdastjóri NATO, kallar NATO 3.0: sterkari Evrópu í sterkara NATO. Nú þegar Evrópa axlar meiri ábyrgð á eigin öryggi hefur aldrei verið mikilvægara að standa við markmið um hernaðargetu. Innkaup og samstarf styrkja þá hvort annað.
Tvíhliða samstarf bandalagsríkja eða samstarf fárra ríkja keppir ekki við NATO heldur gerir bandalagið starfhæfara með því að tengja sameiginlegar skuldbindingar við tiltekinn herafla, búnað, þjálfun, framleiðslugetu og áætlanir um liðsauka.
Aukið samstarf Noregs við nána bandamenn er lykillinn að því að þessi tilfærsla byrðanna (e. burden shift) verði að veruleika. Það byggir upp getu í lögum sem skarast: getu Noregs sjálfs, bandalagsins og tvíhliða samstarfs. NATO tryggir sameiginlegar varnir og tvíhliða samningur okkar Norðmanna við Bandaríkin er hornsteinn varna landsins. Tvíhliða samkomulag við evrópska bandamenn eykur hraða, dýpt og hagnýta samþættingu.
Kafbátasamstarfið við Þýskaland og Kanada er dæmi um þessa nálgun. Noregur og Þýskaland þróa og kaupa kafbáta af gerðinni 212CD í sameiginlegu verkefni. Fyrstu samningar voru undirritaðir árið 2021 og framleiðsla hófst í kjölfarið. Ríkin áforma að annast rekstur, viðhald og uppfærslur kafbátanna sameiginlega út líftíma þeirra.
Í júlí 2026 ákvað Kanada að ganga til liðs við þýsk-norska verkefnið.
Samstarfið tengir saman þrjú bandalagsríki sem bera ábyrgð á hafsvæðum við Evrópu og Norður-Ameríku og byggir á sameiginlegum grunni vélbúnaðar, hugbúnaðar og mannafla. Það skapar forsendur fyrir sameiginlegri þjálfun, birgðahaldi, viðhaldi, tækniþróun og verklagi við aðgerðir beggja vegna Norður-Atlantshafsins.
Freigátusamstarf Noregs við Bretland byggir á sömu hugsun. Í ágúst 2025 valdi Noregur Bretland sem strategískan samstarfsaðila við kaup á nýjum freigátum. Norska ríkisstjórnin kynnti fyrirkomulagið ekki sem einskiptiskaup heldur sem langtímasamstarf um innkaup, þróun og rekstur skipanna.
Í rammasamningnum sem undirritaður var í september 2025 kom fram að norsku og bresku freigáturnar af gerðinni „Type 26“ skyldu vera eins líkar og kostur væri og hafa sömu tækniforskriftir. Þar var gert ráð fyrir samstarfi um aðgerðir, þjálfun áhafna, viðhald, tækni og áframhaldandi þróun. Varnarmálaráðherra Noregs sagði að með verkefninu myndu ríkin tvö í reynd reka einn samþættan freigátuflota.
Lunna House-samkomulagið er enn víðtækara og tengir samstarfið á hafinu einnig við hraða liðsflutninga, sameiginlega starfsemi og aukna hernaðarlega viðveru Breta í Noregi.
Þetta sýnir hvernig innkaup geta fest þátttöku bandamanna í sessi. Sameiginlegur búnaður skapar samfelld tengsl milli herja, fyrirtækja og stjórnvalda. Hann ýtir undir sameiginlega þjálfun, áætlanagerð og gagnkvæmt traust. Búnaðurinn ræður ekki pólitískum ákvörðunum framtíðarinnar, en getur gert samstarfið tamara, hagnýtara og nærtækara.
Sameiginleg innkaup og sameiginleg þekking á hernaðarlegum veruleika geta því orðið stefna bandalagsins í áþreifanlegri mynd. Þegar bandamenn nota sams konar eða vel samhæfðan búnað þarf samstarfið ekki að yfirstíga mun sem hannaður hefur verið inn í kerfin. Samvirkni er innbyggð í getuna frá upphafi.
Frá tvíhliða til svæðisbundins samstarfs
Við tvíhliða samstarfsverkefnin tvö bættist í júní 2026 samkomulag Þýskalands, Bretlands og Noregs, sem undirritað var á fundi varnarmálaráðherra NATO í Brussel. Ríkin þrjú taka þar á sig aukna ábyrgð á að vakta ferðir kafbáta og fylgja þeim eftir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Markmiðið er að efla getu NATO til kafbátavarna, axla aukna ábyrgð á viðbrögðum við ferðum rússneskra kafbáta á Norður-Atlantshafi og draga úr álagi á hnattræna getu Bandaríkjanna.
Á leiðtogafundi NATO í Ankara tilkynntu síðan Kanada og ellefu Evrópuríki, þar á meðal Ísland, ákvörðun um nánara samstarf um öryggi á Norður-Atlantshafi, á norðurslóðum og á Eystrasalti.
Frumkvæðið að þessu víðtæka samstarfi á hafinu kom frá Noregi og markmiðið var að leggja verulega af mörkum til aukins öryggis á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Það var einnig beint svar við ákalli Bandaríkjanna um að önnur ríki tækju á sig meiri ábyrgð á öryggi landsvæðis bandalagsríkjanna, eins og Støre forsætisráðherra benti á þegar samkomulagið var undirritað.
Án sameiginlegrar skuldbindingar um verulega uppbyggingu hernaðargetu er mun erfiðara að sjá fyrir sér að svo djúpt samstarf yrði að veruleika. Einnig er erfitt að sjá fyrir sér að hvert ríki eitt og sér, Noregur þar á meðal, öðlist þá innsýn sem þarf til að taka virkan þátt til lengri tíma í ákvörðunum um varnarmál á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum.
Öll þessi verkefni rúmast innan ramma NATO. Noregur getur ekki varið víðfeðmt landsvæði sitt og hafsvæði einn síns liðs. Bandalagið tengir norska getu við herafla, áætlanir og hernaðarlega mikilvægar bjargir þrjátíu og eins annars bandalagsríkis.
En hlutverk Noregs getur ekki falist í því að vera óvirkur þiggjandi öryggis. Norskt eftirlit, landher, flugher og sjóher, innviðir og geta til að taka á móti liðsauka leggja öll sitt af mörkum til sameiginlegra varna bandalagsins. Í innkaupaáætlun norsku ríkisstjórnarinnar frá febrúar 2026 kemur skýrt fram að Noregur þurfi að efla sjálfstæða getu sína til að tryggja athafnafrelsi landsins og bandamanna, axla meiri ábyrgð á öryggi landsins og svæðisins og bæta skiptingu byrða.
Varnir landsins og þátttaka bandamanna eru háðar hvor annarri. Herafli bandamanna þarf starfhæfar hafnir, flugvelli, geymsluaðstöðu og fjarskipta- og samgöngukerfi. Hann þarf einnig norskar hersveitir sem hann hefur æft með og getur starfað með. Öflugt gistiríki gerir liðsflutninga hraðari, öruggari og ekki síst trúverðuga í hernaðarlegu tilliti.
Aðild Finnlands og Svíþjóðar að NATO hefur opnað nýja möguleika á samþættri norrænni áætlanagerð. Öll Norðurlöndin fimm eru nú bandamenn og sjö af átta norðurskautsríkjum eiga aðild að NATO. Forsætisráðherrar Noregs og Finnlands hafa lagt áherslu á að umsvif bandamanna á norðurslóðum séu lögmæt, eigi sér langa sögu og séu í varnarskyni.
Svæðisbundið norrænt samstarf verður einnig mikilvægara. Innganga Svíþjóðar og Finnlands í NATO hefur gert norrænt varnarsamstarf að lykilþætti í bættum vörnum á norðurslóðum, bæði pólitískt og í framkvæmd. Samstarf norrænu flugherjanna (Nordic Air Power Concept, NAPC) er eitt dæmi um það.
Finnland, Svíþjóð, Noregur og Danmörk ráða samanlagt yfir meira en 200 orrustuþotum af nýjustu kynslóðum, þar á meðal F-35 og Saab Gripen.
Eftir að Svíþjóð og Finnland ákváðu að ganga í NATO hefur veigamikið starf verið unnið til að greiða fyrir sameiginlegri aðgerðaáætlanagerð, samþættri stjórnun og sveigjanlegri nýtingu flugstöðva. Markmiðið er að flugherir ríkjanna geti starfað sem næst eins og einn herafli.
Samstarfið er fellt að skipulagi NATO og tengt stjórnstöð loftaðgerða (Combined Air Operations Centre) í Bodø í Noregi. Það eykur samanlagðan loftvarnarmátt Norðurlandanna.
Hernaðarleg staða Noregs dregur ekki úr ábyrgð landsins. Noregur liggur nærri Kólaskaga og Norðmenn þekkja vel til herafla Rússa í norðri. Hvort tveggja er áfram sérstakt framlag landsins til NATO. Norður-Atlantshaf, Noregshaf og Barentshaf hafa auk þess sem fyrr sérstaka þýðingu sem hafsvæði.
Framlag Noregs færir NATO inn á svæðið og NATO margfaldar um leið áhrif norska framlagsins.
Styrkur í þágu stöðugleika
Stefna Noregs í norðri hefur löngum sameinað hernaðarlegan styrk og fyrirsjáanleika. Það jafnvægi er enn nauðsynlegt. Fæling er ekki ögrun. Trúverðugar varnir draga úr hættunni á að annað ríki meti ranglega getu eða vilja Noregs til að bregðast við.
Noregur ætti að halda áfram nauðsynlegu og hagnýtu samstarfi við Rússland, samstarfi sem verndar líffræðilegar auðlindir sem skipta alla máli. Jafnframt verður Noregur að gera ljóst að leynilegar aðgerðir gegn mikilvægum innviðum og önnur möguleg skemmdarverk séu óásættanleg. Eftirlit og samhæfing bandamanna hafa sannað gildi sitt, bæði til að koma í veg fyrir fjandsamlegar aðgerðir og til að sýna að herafli Noregs og bandamanna geti brugðist við, og það í sameiningu.
Noregur og bandamenn hans verða að búa yfir þeirri þekkingu og getu sem þarf til að greina óhapp frá þvingun og eðlilega starfsemi frá undirbúningi skemmdarverka.
Til þess þarf eftirlit í lofti, á hafi og neðansjávar, varin fjarskipti, borgaralega innviði sem búa yfir viðnámsþrótti, skilvirkt samstarf um upplýsingaöflun og pólitíska verkferla sem gera kleift að bregðast við þegar erfitt er að rekja hver ber ábyrgð. Umfram allt þarf samstarf sem byggt hefur verið upp og æft áður en hættuástand skapast.
Landfræðilega mikilvægri stöðu Noregs fylgir sérstök ábyrgð. Fjárfestingar Norðmanna í varnarmálum hjálpa til við að verja siglingaleiðir, mikilvæga innviði og leiðirnar inn á Atlantshaf úr norðri.
Markmiðið er að varðveita frið, pólitískt frelsi og stöðugleika á svæði sem lengi hefur reitt sig á að ríki sýni stillingu og séu fyrirsjáanleg í gerðum sínum. Það felur jafnframt í sér að tryggja að enginn mögulegur andstæðingur álykti sem svo að hægt sé að nýta sér fjarlægð, leynd eða hik bandamanna.
Vilji og geta Norðmanna til að axla sinn hluta varnarbyrðanna haldast í hendur við væntingar um að bandamenn taki áfram virkan þátt í vörnum Noregs. Með því að efla eigin varnir, styrkja NATO og byggja upp varanlegt samstarf við bandamenn stefnir Noregur að því að stuðla að sterkari Evrópu, meira jafnvægi í sambandi Evrópu og Norður-Ameríku og trúverðugu Atlantshafsbandalagi.