Tímarit Vörðu · 2. tölublað · Október 2026 · 03

Sögulegt tækifæri Grænlendinga

Ég varð heillaður af Grænlandi fyrir aldarfjórðungi. Fyrstu ferðir mínar voru á þær slóðir þar sem nú er verið að leita að olíu, norður að Scoresbyfirði. Þar er stærsti þjóðgarður heims, um níu sinnum stærri en Ísland, og við leigðum hundasleða og fengum aðstoð ísbjarnarveiðimanna til að koma tjaldbúðum okkar fyrir upp á hásléttunni þar sem við höfðumst við í 8 daga. Enginn hafði áður eytt orku í að klífa tindana, hvað þá skíða hlíðarnar, enda ekki veiðislóð þar sem spendýrin halda sig við sjávarsíðuna.

Síðan hef ég siglt um Scoresbyfjörð, þann stærsta í heimi, og verið í leiðangri sem fann um 500 ára gamlar mannvistarleifar innarlega í firðinum, þar sem inúítar höfðu búið en aðeins munnmælasögur voru til um tilvist þeirra. Við notuðum gervihnattamyndir til að feta okkur áfram enda er kortagrunnur landsins afskaplega takmarkaður. Grænland er enn að stórum hluta ókortlagt.

Á þessum aldarfjórðungi hefur staða Grænlands gjörbreyst. Grænlendingar standa nú frammi fyrir raunverulegu tækifæri til að segja skilið við nýlendusöguna og taka ábyrgð á eigin málum. Það tækifæri ræðst ekki af því hver tryggir varnir landsins, enda hefur landafræðin svarað þeirri spurningu frá 1941. Það ræðst af því hvort Grænlendingum tekst að skapa skilyrði fyrir fjárfestingu sem endist. Þar eiga Íslendingar óvenju ríkt erindi, ekki af því að við vitum betur, heldur af því að við erum þegar orðin einn umsvifamesti erlendi aðilinn í grænlensku atvinnulífi og af því að við gengum sjálf í gegnum þessa sömu umbreytingu. Ég legg til tvennt.

Í fyrsta lagi á Ísland að leiða vinnu við gerð fríverslunarsamnings milli Grænlands, Íslands og Bandaríkjanna. Í öðru lagi á Ísland að bjóða fram, að beiðni Grænlendinga og á þeirra forsendum, þá reynslu sem reyndist okkur sjálfum dýrmætust: stofnanauppbyggingu og umgjörð um mikilvægan eignarrétt, fasteigna- og landskrá og fyrirsjáanlegar reglur um auðlindaleyfi. Þá þekkingu er að finna hjá íslenskum stofnunum og utanríkisráðuneytið á að bjóða hana fram. Hvorug tillagan kallar á nýjar stofnanir.

Ísland hefur í hálfa öld verið lykiltenging austurstrandarinnar við umheiminn. Íslensk flugfélög hafa þjónustað byggðina á svæðinu í hátt í 50 ár í gegnum flugvöllinn á Nerlerit Inaat, áður Constable Point, en eina þorpið á svæðinu sem eftir lifir í dag er Ittoqqortoormiit. Saga þess er sorgleg en frumbyggjar voru fluttir norður eftir ekki síst til að festa yfirráð danskra nýlenduherra yfir Austur-Grænlandi gagnvart kröfum Norðmanna snemma á 20. öldinni. Skipið sem ferjaði fólkið og byggingarefni fyrir hús steytti á skeri og stýrið brotnaði. Því var þorpið byggt þar sem það stendur í dag, ekki inni í stærsta firði heims, heldur við mynni hans þar sem vindarnir leika. Samfelld fólksfækkun hefur verið á svæðinu frá því ég kom þarna fyrst. Veiðimennirnir sem áður gátu selt grávöru (afurðir ísbjarna, sauðnauta, sela og rostunga) hafa núna ekkert eftir til að selja þar sem alþjóðleg bönn og reglugerðir hafa kæft verslun með þessar vörur.

Þegar síðast varð uppgangur á hrávörumörkuðum í kringum 1970 voru gerðir út leiðangrar á austurströnd Grænlands til að kanna hvað væri þar að finna. Einhver starfsemi átti sér stað en hafði árið 1990 lagst af. Síðustu ár hefur leit að hrávörum færst í aukana á svæðinu. Austurströndin er mjög afskekkt, því þar leggur ís í lok ágúst og einungis eru rúmir 2 mánuðir þar sem hafnir eru íslausar, og Grænlandsjökull gerir flug á vesturströndina stopult. Bestu tengingar liggja því um Ísland en einungis 6% landsmanna búa á austurströndinni.

Að flytja úr foreldrahúsum

Ég fór í ferð með Andra Snæ Magnasyni árið 2010 til Nuuk og Maniitsoq á vesturströndinni til að ræða við heimamenn um áform Alcoa um uppbyggingu á Maniitsoq-eyju. Við töldum það ekki svæðinu til framdráttar að fá um 2.600 manns á byggingartíma, nær eingöngu karlmenn, inn á svæði þar sem tæplega 2.800 íbúar voru fyrir en þeir stunduðu mest sjávarútveg. Við sáum ekki hvernig arður af álframleiðslunni gæti orðið eftir í samfélaginu eða tekjur af starfseminni eflt ríkissjóð. Sú fjárfesting sem ég tala fyrir er að mínu mati betri fyrir Grænlendinga þegar kemur að eignarhaldi, skattlagningu og aðkomu heimamanna og arði sem verður eftir á svæðinu.

Í þinginu, hjá ríkissjónvarpinu og á borgarafundum fann maður að Grænlendingar þráðu heitt að öðlast sjálfstæði. Þarna kynntist ég m.a. Vivian Motzfeldt, sem hefur síðan gegnt ýmsum lykilembættum, verið forseti grænlenska þingsins og ráðherra menntamála og utanríkismála, og hefur stutt sjálfstæðisbaráttuna allan sinn feril. Þáverandi flokkssystir hennar, Aleqa Hammond, tók við formennsku í Siumut, sögulega valdamesta flokki Grænlands, árið 2009 og setti sjálfstæðismálið í forgrunn. Sú setning sem ég heyrði oftast á þessum tíma var: „Það er kominn tími til að flytja úr foreldrahúsum og taka eigin ábyrgð á framtíðinni“.

Síðustu 25 ár hefur uppbygging höfuðstaðarins Nuuk verið gríðarleg og íbúum þar fjölgar stöðugt á meðan fækkun verður í dreifbýli. Þetta er alþjóðleg þróun þar sem borgir bjóða upp á betri þjónustu og fjölbreyttari atvinnutækifæri en dreifðar byggðir og sérstaklega með aukinni þátttöku kvenna í atvinnulífinu eykst aðdráttarafl þéttbýlis. Það er erfitt að harma þessa þróun.

Grænlendingar átta sig á því að til að standa á eigin fótum þarf landið að vera fjárhagslega sjálfbært. Danska ríkið leggur um 85 til 90 milljarða íslenskra króna til Grænlands á hverju ári. Það er um fimmtungur landsframleiðslunnar og hærri fjárhæð en allar skatttekjur landsins samanlagt. Grænlendingar vita að þeir þurfa að brúa það bil sem myndast ef þeir segja sig úr danska konungsveldinu. Síðustu ár hafa þeir verið vongóðir um að skatttekjur af hrávörum muni vaxa til að gera landið sjálfbært. Ég gaf út bókina Norðurslóðasókn árið 2013 og þar fór ég yfir verkefni sem á þeim tíma þóttu vænleg. En tekjurnar hafa látið bíða eftir sér.

Þegar Grænland komst á kortið

Þegar Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, stofnaði til Hringborðs norðurslóða 2013 átti ég hlut að því framtaki. Þá var erfitt að fá athygli stjórnvalda í Washington á norðurslóðir. Stór sendinefnd frá Alaska hefur tekið þátt í ráðstefnunni frá upphafi en stjórnkerfið í höfuðborginni sýndi engan áhuga. Í dag er hringborðið stærsti vettvangur umræðu um málefni norðurslóða, þar á meðal Grænlands.

Árið 2018 var útboð á framkvæmdum á flugvöllum á Grænlandi. Meðal þeirra sem komust í gegnum forval var kínverski ríkisverktakinn CCCC. Ég taldi þetta líklegt til að kveikja áhuga manna í Washington, sem það gerði svo um munaði.

Um það leyti bauð James Mattis, þáverandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, danska starfsbróður sínum til Washington til að ræða kínverska fjárfestingu á Grænlandi. Mánuði síðar hófu Danmörk og Grænland viðræður um danska fjármögnun og hugmyndir um kínverska fjármögnun voru settar á ís. Í september 2018 tilkynnti danska ríkisstjórnin þátttöku sína í fjármögnun flugvallanna, og í júní 2019 dró CCCC boð sitt formlega til baka og bar því við að fyrirtækið fengi ekki nauðsynlegar vegabréfsáritanir. Bandarískur þrýstingur skilaði sér.

Þetta var alger leikbreytir fyrir Grænland. Í ágúst sama ár sagði Trump forseti að hann vildi kaupa Grænland. Það setti Grænland rækilega á kort heimsmála.

Grænlenska stjórnin svaraði strax að Grænland væri ekki til sölu en opið fyrir fjárfestingar og viðskipti. Þar með birtist óvænt ný og einstök staða í sögu landsins.

Íslendingar eru þegar á staðnum

Stærstu fjárfestingar á Grænlandi í innviðum hafa verið stækkun hafnarinnar í Nuuk, sem nam um 80 milljónum dala og var að hluta fjármögnuð af lífeyrissjóðum í Bandaríkjunum en að öðru leyti af grænlenskum stjórnvöldum, og svo uppbygging flugvallanna sem nefnd er hér að ofan sem Danir tóku á endanum þátt í að fjármagna.

Íslenska verktakafyrirtækið Ístak lauk byggingu skóla, íþróttahúss, samkomusalar og fleira í Nuuk fyrir um tólf milljarða króna, og var skólinn tekinn í notkun í ágúst. Áður hafði fyrirtækið byggt helstu vatnsaflsvirkjanir Grænlands.

Samgöngur Grænlands við umheiminn liggja í vaxandi mæli um Ísland. Eimskip hóf samstarf við Royal Arctic Line árið 2016 sem tengdi Grænland við alþjóðlegt siglingakerfi félagsins, félögin deila nú skipum í áætlunarsiglingum og Eimskip hefur síðan tekið yfir umboðs- og flutningsmiðlunarstarfsemi Royal Arctic Line á Grænlandi. Icelandair flýgur áætlunarflug til Nuuk, Ilulissat og austurstrandarinnar og íslenskir flugvellir eru ein helsta gátt ferðamanna og viðskiptalífs inn í landið. Beint millilandaflug til austurstrandarinnar liggur eingöngu um Ísland. Enginn annar nágranni Grænlands hefur byggt upp sambærilega innviði í lofti og á legi.

Íslendingar eru sömuleiðis stórtækir þegar kemur að almennum fjárfestingum á Grænlandi. Brim hf., þar sem Guðmundur Kristjánsson er aðaleigandi, fjárfesti fyrir um 13,5 milljarða króna á Grænlandi árið 2020, tók 16,5 prósenta hlut í Arctic Prime Fisheries á suðurhluta landsins og seldi félaginu nýsmíðað frystiskip. Eins keypti félagið helmingshlut í Polar Seafood Denmark árið 2022 fyrir um 90 milljónir dala en þann hlut seldi Brim svo nú í sumar meðeiganda sínum, Polar Seafood Greenland, fyrir um 145 milljónir dala, á sama tíma og krafan um grænlenskt eignarhald í sjávarútvegi hafði farið vaxandi. Stærsti einkafjárfestirinn í námuvinnslu á Grænlandi síðustu ár er svo félagið Amaroq, áður AEX Gold, sem Eldur Ólafsson hefur byggt upp af miklum myndarskap. Félagið hefur byggt upp gullnámuna í Nalunaq, sem hóf framleiðslu í lok árs 2024, og forstjóri félagsins gerir ráð fyrir að það verði stærsti skattgreiðandi landsins á næsta ári.

Þegar allt er tekið saman – siglingar og flug, sjávarútvegur og námuvinnsla, verktaka og uppbygging – eru Íslendingar einn umsvifamesti erlendi aðilinn í grænlensku atvinnulífi. Áhugi Íslendinga hefur því þegar þróast í aðgerðir og verkefni, þrátt fyrir að opinber stefna stjórnvalda sé ekki þar.

Tvær fyrrum nýlendur

Danir stunduðu einokunarverslun á Grænlandi og meinuðu öllum öðrum komu til landsins. Um áratugaskeið eftir stríð var danska gerð að ráðandi kennslumáli í skólum á kostnað grænlenskunnar, og framkoma Dana á tuttugustu öld var ekki til eftirbreytni. Þar nægir að nefna lykkjumálið, þar sem getnaðarvarnarlykkjum var komið fyrir í grænlenskum konum án þeirra vitneskju eða samþykkis. Það var ekki fyrr en eftir yfirlýsingar Trumps í seinni forsetatíð hans að dönsk stjórnvöld báðust formlega afsökunar á þeim hryllingi. Ekki má heldur gleyma hvernig Danir tóku börn frá fjölskyldum sínum árið 1951 og komu þeim fyrir hjá dönskum fósturfjölskyldum, í tilraun til að gera þau dönsk og að „fyrirmyndum“ fyrir aðra Grænlendinga. Danir tóku Grænland með sér inn í Efnahagsbandalagið árið 1973, en leyfðu Færeyingum að standa utan, og eitt það fyrsta sem heimastjórnin gerði, eftir myndun hennar 1979, var að hefja úrsagnarferli úr bandalaginu sem lauk 1985.

Ísland sjálft gekk svipaða leið, þó að yfirgangur Dana hafi ekki gengið jafn langt. Við urðum fullvalda ríki undir dönsku krúnunni 1918, og sjálfstætt lýðveldi 1944 í skjóli vestrænna tengsla.

Bretar hertóku Ísland í maí 1940, án þess að spyrja nokkurn um leyfi, mánuði eftir að nasistar tóku Danmörku og réðust inn í Noreg. Um ári síðar tók bandaríski herinn við af þeim breska, þegar Bretar þurftu herliðið annars staðar. Eftir það hefur stuðningur Bandaríkjanna við Ísland verið ómetanlegur, svo sem í þorskastríðinu, og í uppbyggingu innviða á Íslandi. Það sama má segja um Grænland. Þegar nasistar hertóku Danmörku tóku Bandaríkjamenn að sér varnir landsins og komu á fót atvinnustarfsemi í kringum námur. Þeir lögðu innviði og færðu landið nær nútíma lifnaðarháttum. Danir reyndu að loka landinu á ný eftir stríð, en árið 1950 var verslunareinokuninni aflétt og síðan hefur engum dottið í hug að banna erlend viðskipti og samskipti í landinu. Grænlendingar hafa nú einstakt tækifæri til að dýpka tengingar sínar vestur um haf.

Bandaríkin hafa með herstöðvum sínum tryggt varnir Grænlands. Það er bandarískt fyrirtæki, Greenland Energy, sem hyggst bora eftir olíu á Jameson-landi við Scoresbyfjörð.

Ísland er eina landið sem hefur, að eigin frumkvæði og með friðsamlegum hætti, flutt úr þessum tilteknu „foreldrahúsum“ og uppbygging íslensks samfélags frá 1944 hefur tekist með eindæmum vel. Það blasir því við að reynsla okkar getur nýst okkar næstu nágrönnum gríðarlega vel. Lykillinn er þó að allt sé gert á forsendum Grænlendinga, það má ekki líta þannig út að við ætlum okkur að koma í stað Dana við ákvarðanatöku á Grænlandi.

Eignarréttur og alþjóðaviðskipti: það sem ræður úrslitum

Energy Transition Minerals, áður Greenland Minerals, var með leyfi til að vinna málma úr námu við Kuannersuit við Narsaq en hefur nú stefnt ríkisstjórninni sem afturkallaði leyfið og krefst bóta sem nema ríflega þreföldum þjóðartekjum Grænlands, allt að 80 milljörðum danskra króna eða um 11,5 milljörðum dala. Gerðardómur komst þó að þeirri niðurstöðu haustið 2025 að leyfisspurningin ætti ekki undir hann og að Danmörk gæti ekki verið aðili, og málið er nú rekið fyrir grænlenskum dómstólum. Eins hefur grænlenska landstjórnin tafið fyrirhugaða olíuborun við Scoresbyfjörð, sem í ágúst var frestað um að minnsta kosti eitt ár.

Grunnur allra viðskipta, og þar með velmegunar, er eignarréttur. Sögulega hafa Grænlendingar ekki gert mikið með eignarrétt og þar er til dæmis ekki til eignarréttur á landi. Slíkt hamlar allri fjárfestingu og uppbyggingu í landinu.

Fyrirsjáanleiki í aðgerðum stjórnvalda, eignarréttur og áhugi á erlendri fjárfestingu voru lykilbreytur í þróun velsældar á Íslandi. Uppbygging orku- og samgönguinnviða krafðist erlends fjármagns sem gerði kröfur um fyrirsjáanleika og trausta samninga til langs tíma. Hér mættu grænlensk stjórnvöld líta til reynslu Íslands. Annað sem tryggði okkur aukin lífskjör voru alþjóðaviðskipti og alþjóðlegir samningar. Íslenskir athafnamenn hafa kynnt hugmyndir um fríverslunarsamning á milli Íslands, Grænlands og Bandaríkjanna undir heitinu Inneq, og vinna að trúverðugum leiðum að því marki um þessar stundir.

Mér finnst það vera sögulegt tækifæri Grænlendinga til að tryggja stöðu sína til framtíðar: segja skilið við hundraða ára nýlendusögu, opna landið fyrir frekari samskiptum bæði til austurs og vesturs og taka ábyrgð á eigin málum. Tækifærið er einstakt, núna þegar Bandaríkin, Danmörk og Grænland hafa undirritað samkomulag sem útvíkkar varnarsamninginn frá 1951 og festir hlutverk Bandaríkjanna í vörnum landsins í sessi.

Tillögurnar tvær eru ekki stórar á mælikvarða alþjóðastjórnmála. En þær eru framkvæmanlegar og þær snúa að því sem raunverulega ræður úrslitum. Hagsmunir okkar og Grænlendinga fara að miklu leyti saman, þótt við keppum um fiskveiðiheimildir, ferðamenn og fjármagn. Það sem skiptir máli er að Grænlendingar taki ákvörðunina sjálfir. Okkar hlutverk er að vera gagnleg, ekki að koma í stað nokkurs manns.

Heiðar Guðjónsson er hagfræðingur, fyrrverandi formaður Efnahagsráðs Norðurslóða (Arctic Economic Council) og formaður stjórnar Íslandsbanka.