Í miðju stormsins: Hvers vegna Ísland lítur á hrun hafstrauma sem þjóðaröryggismál
Þjóðaröryggi vekur iðulega hugrenningartengsl við hernað, netárásir og átök. Um varnir þjóðar gegn óvelkomnum afskiptum annarra þjóða eða hópa. Það er þjóðaröryggi í þröngum skilningi. En þjóðaröryggi snýst ekki síður um að tryggja að samfélagið okkar geti staðið af sér áföll sem geta raskað grundvallarforsendum þess.
Þetta þekkjum við Íslendingar vel. Við búum með náttúruvá í bakgarðinum og fæstum þykir það tíðindum sæta að þjóðaröryggisráð fjalli um Reykjaneselda eða áhættumat vegna náttúruvár.
Í september 2025 steig ríkisstjórn Íslands skref sem ekkert annað ríki hafði stigið, svo vitað sé. Að minni tillögu vísaði ríkisstjórnin hættunni á veikingu eða hruni veltihringrásar Atlantshafsins, AMOC, til þjóðaröryggisráðs. Ákvörðunin vakti talsverða athygli víða um heim og er það mál sem ég hef oftast rætt við erlenda fjölmiðla. En þetta vakti minni undrun á Íslandi, enda nátengt umfjöllun um náttúruvá sem hefur áður komið á borð þjóðaröryggisráðs á Íslandi.
Þessi ákvörðun var ekki tekin af léttúð. Veiking eða hrun AMOC gæti mögulega raskað grunnforsendum lífsskilyrða á Íslandi. Hættan á veikingu eða hruni eykst með hlýnun jarðar, og með meiri og hraðari hlýnun skapast aukin áhætta fyrir Ísland.
Stöðugleiki hafstrauma er grundvöllur lífsskilyrða á Íslandi
AMOC er stórt hringrásarkerfi í Atlantshafinu sem flytur hita frá suðlægari slóðum norður. Þetta er flókið kerfi sem tengir saman yfirborðs- og djúpsjávarstrauma: Hlýtt og salt yfirborðsvatn berst norður á bóginn, kólnar og sekkur og heldur þannig hringrásinni gangandi. Golfstraumurinn, sem flestir þekkja, er hluti af þessu kerfi.
Hringrásin stjórnar loftslagi í Norður-Atlantshafi og hefur þannig grundvallaráhrif á lífsskilyrði hér á landi og víðar í Evrópu: Á Íslandi ríkir mun hlýrra loftslag en á sambærilegum breiddargráðum þar sem hringrásarinnar nýtur ekki við.
Loftslagsbreytingar geta raskað þessu jafnvægi. Hlýrra loftslag og aukið ferskvatn frá bráðnun Grænlandsjökuls geta meðal annars haft áhrif á eðlisfræðilegar forsendur hringrásarinnar og dregið úr styrk hennar með þeim afleiðingum að hún veikist eða í versta falli hrynur. Á þessu er mikilvægt að gera greinarmun: Veiking er ekki það sama og hrun hringrásarinnar.
Vísindasamfélagið hefur lengi rannsakað möguleikann á veikingu hringrásarinnar og hvort hún geti náð svokölluðum vendipunkti. Loftslagsvendipunkta má hugsa sem þröskulda þar sem kerfi jarðar færast úr einu ástandi í annað með óafturkræfum hætti. Hættan felst ekki síst í því að vendipunkti kann að vera náð nokkru áður en afleiðingarnar koma fram, þegar orðið er of seint að snúa þróuninni við. Þannig er ómögulegt að vita hvort farið hafi verið yfir vendipunkt fyrr en það er um seinan og því mikilvægt að bregðast við áður en svigrúmið til að koma í veg fyrir alvarlegar afleiðingar er horfið. Umtalsverðar rannsóknir hafa farið fram á AMOC á undanförnum árum. Fjöldi vísbendinga er um að hringrásin sé þegar farin að glata stöðugleika sínum og veikjast. Hrun AMOC hefði víðtækar og djúpstæðar afleiðingar á heimsvísu. Rannsóknir benda til þess að land sem hentar til ræktunar á mikilvægum nytjajurtum geti dregist verulega saman um allan heim, auk þess sem rannsóknir sýna alvarlega stöðu vegna langvarandi þurrka í Evrópu.
Líkanarannsóknir sýna óhugnanlegar niðurstöður um mögulegt hrun AMOC miðað við þróun losunar gróðurhúsalofttegunda, og áhrifin velta samkvæmt niðurstöðum m.a. á því hversu hröð hlýnunin verður. Nýverið staðfesti Umhverfisstofnun Sameinuðu þjóðanna (UNEP) að 1,5°C-markmið Parísarsamningsins er að renna okkur úr greipum. Hugsunin á bak við 1,5°C-markmiðið var að hlífa mannkyninu og vistkerfum við verstu afleiðingum loftslagsbreytinga, þar á meðal vendipunktum eins og AMOC. Það er því ljóst að mikilvægi þess að nálgast loftslagsmál sem öryggismál fer vaxandi, rétt eins og þessi ríkisstjórn hefur gert í tilviki AMOC.
Þótt vísindalegri þekkingu fleygi fram ríkir enn töluverð óvissa. Við vitum til dæmis ekki nákvæmlega hvaða samspil hlýnunar, ferskvatns og annarra þátta þarf til þess að farið sé yfir vendipunkt eða hvenær það gæti gerst. Þessi óvissa má ekki verða afsökun fyrir því að sitja með hendur í skauti heldur ætti hún einmitt að gefa okkur ástæðu til að sýna fyrirhyggju og bregðast hratt við.
Hvers vegna er þetta þjóðaröryggismál?
Ástæðan er einföld. Breytingar á AMOC gætu haft veruleg áhrif á grunnstoðir íslensks samfélags. Í alvarlegustu sviðsmyndunum verður ómögulegt fyrir íslenskt samfélag að aðlagast. Þetta snýst því ekki aðeins um hversu líklegt er að atburðurinn verði eða hvenær hann gæti orðið, heldur um umfang mögulegra afleiðinga. Auk þess kemur beinlínis fram í þjóðaröryggisstefnu Íslands að eitt af tólf áhersluatriðum hennar er að sporna við röskun á lífsskilyrðum og búsetu vegna loftslagsbreytinga. Þess vegna innihalda skýrslur þjóðaröryggisráðs um framkvæmd þjóðaröryggisstefnu heilu kaflana um loftslagsmál.
Byrjum á fæðuöryggi.
Sjávarútvegurinn er ein af helstu útflutningsgreinum Íslands og fiskistofnar eru háðir umhverfisskilyrðum í hafinu. Breytingar á hita, straumum, næringarefnum og vistkerfum geta haft áhrif á útbreiðslu og hegðun fiskistofna og þar með á forsendur mikilvægrar atvinnustarfsemi.
Breytingar á loftslagi, úrkomumynstri og vatnsbúskap geta haft áhrif á landbúnað og matvælaframleiðslu á sama tíma og breytingar vegna hafstrauma annars staðar í heiminum geta haft áhrif á alþjóðleg matvælaviðskipti og aðfangakeðjur.
Þá kemur orkuöryggið.
Íslenskt raforkukerfi byggir að stórum hluta á vatnsafli. Breytt úrkoma, snjósöfnun, leysingar og vatnsbúskapur geta því haft áhrif á forsendur orkukerfisins. Ef loftslag verður á köflum kaldara eða sveiflukenndara hér á landi getur eftirspurn eftir upphitun jafnframt breyst.
Samgöngur og innviðir eru annar þáttur.
Við treystum á hafnir, siglingar og flug. Breytt veðurfar, aukin ókyrrð, breytingar á sjávarstöðu eða meiri sjávarís á ákveðnum svæðum gætu haft áhrif á innviði og samgöngur. Fjarskipti og aðfangakeðjur eru sömuleiðis háð innviðum sem þurfa að geta staðið af sér áföll.
Síðan eru efnahagslegu áhrifin.
Ef breytingar verða á náttúrulegum skilyrðum sem atvinnugreinar byggja á getur það haft áhrif á fyrirtæki, störf, opinber fjármál og verðmæti eigna. Tryggingamarkaðir og fjármálakerfi þurfa líka að takast á við áhættu sem verður meiri eftir því sem óvissa og sveiflur aukast.
Breytingar á AMOC gætu einnig haft víðfeðm áhrif í Evrópu, sem ógnar aðfangakeðjum fyrir Ísland sem er mjög háð innflutningi.
Veruleg röskun á AMOC gæti haft áhrif á landbúnað, vatnsöflun og fæðuöryggi víða um heim. Afleiðingarnar gætu síðan birst í auknum fólksflutningum, aukinni þörf á mannúðaraðstoð, röskun alþjóðaviðskipta og auknum geopólitískum óstöðugleika.
Þessir áhættuþættir eru ekki aðskildir. Þeir tengjast og geta magnað hver annan upp.
Með því að taka málið til umfjöllunar á vettvangi þjóðaröryggisráðs erum við ekki að spá fyrir um hrun AMOC. Við erum að viðurkenna að áhættan er til staðar, að hún er margþætt og kerfislæg og að stjórnvöld þurfa að fylgjast með henni og undirbúa viðbrögð.
Það er ábyrg stjórnsýsla og fyrirhyggja. Við tryggjum meðvitund þvert á stjórnkerfið og undirbúum farveg fyrir ákvarðanatöku um áhættu sem ógnar öryggi samfélagsins.
Markviss viðbrögð við alvarlegum vísbendingum
Árið 2024 skrifaði hópur vísindamanna opið bréf til Norrænu ráðherranefndarinnar þar sem varað var við áhættunni sem fylgir verulegri röskun á AMOC. Síðan þá hefur birtingum á vísindalegum rannsóknum tengdum AMOC fjölgað verulega, eins og fyrr greinir, og þekking um AMOC er stöðugt að aukast. Ég kallaði því eftir minnisblaði frá sérfræðingum ráðuneytisins og Veðurstofu Íslands um stöðu vísindalegrar þekkingar og áhrifa af röskun eða hruni AMOC á Ísland í ágúst 2025. Ég lagði það fyrir ríkisstjórn Íslands sem samþykkti að vísa málinu til þjóðaröryggisráðs.
Í kjölfarið setti ég á fót þverfaglegan starfshóp um loftslagstengda vendipunkta með áherslu á AMOC. Hlutverk hópsins er meðal annars að fylgjast með þróun vísindalegrar þekkingar, greina hvar þekkingargötin eru, skoða stöðu vöktunar og rannsókna á hafi og leggja fram tillögur um það hvernig stjórnvöld geti brugðist við.
Þetta voru nauðsynleg skref til að tengja lykilaðila í stjórnkerfinu og tryggja samstillt viðbragð við nýrri og alvarlegri áhættu fyrir íslenskt samfélag.
Í því samhengi vinnur ráðuneytið nú að því að undirbúa sviðsmyndaæfingu um mögulega veikingu eða hrun AMOC. Æfingin er hluti af alþjóðlegu verkefni sem unnið er af Strategic Climate Risks Initiative, University of Exeter og University College London Climate Action Unit.
Markmið æfingarinnar er að leiða saman aðila úr efsta lagi stjórnkerfis og stofnana til að skoða hugsanleg áhrif þessarar tegundar kerfisáhættu og æfa mat, undirbúning og viðbrögð við flóknum loftslagstengdum áskorunum fyrir öryggi samfélagsins. Tilgangurinn er að efla skilning stjórnvalda á mögulegum áhrifum veikingar eða hruns AMOC og viðbragðs- og aðlögunarmöguleikum stjórnvalda. Æfingin byggir á framtíðarsviðsmyndum, m.a. unnum af Veðurstofu Íslands. Með þessu erum við ekki að spá fyrir um framtíðina, heldur sjá hvar veikleikar í stjórnkerfi og ákvarðanatöku eru áður en á reynir.
Auk greininga og æfinga þarf að tryggja öfluga vöktun. Við þurfum að nýta hafrannsóknir, gervitungl og mælikerfi til þess að fylgjast betur með breytingum á Norður-Atlantshafi. Við þurfum einnig að vinna áfram að snemmviðvörunarkerfum svo við getum brugðist við í tæka tíð og missum ekki af ummerkjum alvarlegra breytinga.
Í sumar þáði ég boð Costas Kadis, sjávarútvegsstjóra Evrópusambandsins, um að Ísland gerist lykilsamstarfsaðili í EU OceanEye International Alliance. OceanEye snýst um rannsóknir og vöktun á hafi, notkun gervigreindarlíkana til að spá fyrir um breytingar í hafi, og er einn hluti af svokölluðum hafpakka Evrópusambandsins, European Ocean Pact. Ég benti á í bréfi til Kadis að slíkir rannsóknar- og vöktunarinnviðir í hafinu geti skipt sköpum fyrir öryggi samfélaga þegar vísbendingar eru um að stöðugleika hafstrauma á borð við AMOC er ógnað. OceanEye kunni að nýtast sem vöktunarinnviðir vegna veikingar eða hruns hringrásarinnar.
Auk vöktunar þurfum við íslenskt og norrænt áhættu- og viðkvæmnimat. Við þurfum enn skýrari mynd af því hvaða afleiðingar kunna að leiða af þessari áhættu. Hvað þýðir veruleg breyting á AMOC fyrir Ísland? Hvaða atvinnugreinar eru viðkvæmastar? Hvaða innviðir eru í mestri áhættu? Hvar eru veikustu hlekkirnir í aðfangakeðjum okkar? Við þurfum greiningar og við þurfum fleiri en eina sviðsmynd. Það er ekki nóg að tala um eitt mögulegt „AMOC-hrun“. Við þurfum að skoða hægari veikingu, verulega veikingu, hraðari umskipti og það sem gerist ef áhrifin koma fram samtímis á mörgum sviðum.
Alþjóðleg samvinna er lykilatriði
Undirbúningur hér heima er nauðsynlegur, en hann dugar ekki einn og sér. Drifkraftur óstöðugleika AMOC eru loftslagsbreytingar og þær eru í eðli sínu alþjóðlegur vandi sem krefst samvinnu allra ríkja heimsins.
Við þurfum að endurvekja þá tilfinningu að loftslagsmálin séu brýnt verkefni sem þolir enga bið. Ein leið til þess er að tala skýrar um það sem er í húfi: Öryggi samfélaga, lífsskilyrði fólks og viðnámsþrótt ríkja. Þetta er öryggismál. Með því að setja AMOC á dagskrá þjóðaröryggisráðs tók Ísland skref í þá átt. Við öðluðumst ákveðið dagskrárvald á alþjóðasviðinu, sem ég tel að sé skylda okkar að nýta. Ekki því Ísland er með öll svörin eða mestu burðina til að fást við vandann. Heldur því við erum staðsett í miðju stormsins. Auk þess höfum við sterka og trúverðuga stöðu í alþjóðlegu samstarfi um hafið og loftslagsmál. Við getum tengt saman ólíka heimshluta: Norðurlönd, Evrópu og Norður-Ameríku.
Á þeim grunni beindist aðalræða mín á Loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Brasilíu í nóvember 2025 (COP30) að AMOC og öryggi. Í kjölfarið sameinuðum við dr. Johan Rockström, forstöðumaður Potsdam Institute for Climate Impact Research, krafta okkar og skrifuðum um hvers vegna loftslagsáhætta er öryggisógn í upphafi árs 2026. Við munum jafnframt koma fram saman á Arctic Circle að ræða AMOC, loftslagsáhættu og öryggismál nú í október. Þá fór ég þess á leit við Norrænu ráðherranefndina að setja AMOC á dagskrá fundar umhverfisráðherra nefndarinnar í maí 2026. Þar var málinu vel tekið, og kollegar mínir tóku allir undir alvarleika málsins, nauðsyn þess að tryggja vöktun og að Norræna ráðherranefndin væri réttur farvegur fyrir þessa ógn. Þessu nátengt voru hafvöktun og rannsóknir aftur á dagskrá fundar okkar í Færeyjum í lok september.
Og við höfum séð aukna áherslu ráðamanna í Evrópu á að loftslagsbreytingar eru öryggismál á alþjóðasviðinu.
Þegar Ed Miliband, utanríkisráðherra Bretlands, tók við í júlí 2026, var eitt það fyrsta sem hann gerði að hitta spænska kollega sinn, José Manuel Albares Bueno, og skrifa undir sameiginlega yfirlýsingu þess efnis að „climate change was now a national security emergency facing Europe and threatening our way of life.“ Í Bretlandi hefur umtalsverðum fjármunum verið ráðstafað til rannsókna á loftslagsvendipunktum í nokkurn tíma, varnargreiningar í Frakklandi og greiningar finnskra stjórnvalda fjalla um áhrif veltihringrásarinnar og háttsettir embættismenn á Írlandi segja AMOC stærstu loftslagsáhættu sem Írland stendur frammi fyrir, svo dæmi séu tekin. Og þótt loftslagsmál hafi oft áður verið sett í samhengi við öryggi, svo sem á öryggisráðstefnunni í München, á vettvangi NATO o.s.frv., þá má segja að minna hafi farið fyrir því að einstaka ráðherrar eða fulltrúar ríkisstjórna í Evrópu hafi beitt sér og tjáð sig með sama hætti og þeir gera nú.
Fyrsta varnarlínan er að draga úr losun
Við megum þó ekki missa sjónar á því sem skiptir mestu máli.
Besta leiðin til að búa okkur undir þessa hættu er að draga úr líkum á að hún raungerist. Samdráttur í losun er því fyrsta varnarlínan.
Þótt markmiðið um að halda hnattrænni hlýnun innan 1,5°C sé að renna okkur úr greipum, þýðir það ekki að við eigum að gefast upp. Þvert á móti skiptir enn meira máli að halda hlýnun eins nálægt 1,5°C og mögulegt er og forðast langvarandi umframhlýnun (overshoot). Hver tíundi hluti úr gráðu skiptir máli.
Og það er ákveðin ástæða til að halda í bjartsýni. Orkuskiptin á heimsvísu eru komin á fleygiferð og það er hagkvæmnin sem knýr þau áfram. Árið 2025 framleiddu endurnýjanlegir orkugjafar í fyrsta sinn í heila öld meira rafmagn í heiminum en kol, og hrein orka annaði allri aukningu í raforkueftirspurn heimsins. Í Kína, sem árlega losar mest allra ríkja, hefur losun koldíoxíðs staðið í stað eða dregist saman frá því snemma árs 2024, ekki síst vegna fordæmalausrar uppbyggingar sólarorku. Alþjóðastofnunin um endurnýjanlega orku (IRENA) lýsir endurnýjanlegri orku sem höggdeyfi gegn áföllum í alþjóðamálum.
Þrátt fyrir að bjartsýni eigi rétt á sér erum við að sigla inn í nýtt og erfiðara tímabil í loftslagspólitík.
Á sama tíma og vísindin sýna okkur æ skýrar hve eyðileggjandi áhrif loftslagsbreytingar hafa á vistkerfi og samfélög verða pólitísk og efnahagsleg skilyrði til viðbragða að mörgu leyti meira krefjandi en áður. Hér má nefna þætti eins og stríðsátök, viðskipta- og tollastríð, hækkandi skuldastöðu og minnkandi ríkisfjármálasvigrúm, niðurbrot alþjóðlegra leikreglna og uppgang þjóðernispopúlískra afla.
Til þess að ásættanlegur árangur náist í samdrætti losunar þarf að ráðast í stjórnvaldsaðgerðir sem getur víða verið krefjandi fyrir stjórnmálamenn að afla fylgis við. Í stjórnmálum og efnahagspólitík okkar daga birtist raunar grundvallartogstreita milli markmiða um síaukna velmegun, samfélagslega sátt og hraðan samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda.
Ísland og hin Norðurlöndin hafa ákveðið forskot þegar kemur að því að brjótast út úr slíkri togstreitu og fórnarskiptum. Við höfum þegar sýnt að endurnýjanleg orka getur gert samfélagið sterkara, ríkara og jafnara. Á Íslandi er rafmagn nánast alfarið framleitt með vatnsafli og jarðhita og flest heimili hituð með jarðhita. Þegar við skiptum síðan olíu út fyrir innlenda orku í samgöngum og atvinnulífi munum við ekki aðeins draga úr losun heldur einnig spara gjaldeyri, minnka þörfina fyrir innflutt eldsneyti og styrkja efnahagslegt öryggi okkar og áfallaþol. Þannig brjótumst við út úr togstreitunni með því að gera loftslagsaðgerðir að sýnilegri og áþreifanlegri uppsprettu betri lífskjara, aukinnar samkeppnishæfni og efnahagslegs sjálfstæðis.
Enn er um 15% orkunotkunar Íslands innflutt jarðefnaeldsneyti sem er kostnaður upp á um 160 milljarða á ári. Auk þess minntu átökin við Hormússund okkur rækilega á það að það er öryggismál að við hættum að reiða okkur á innflutt jarðefnaeldsneyti.
Þetta er sú loftslagspólitík sem ég trúi á: Loftslagspólitík sem styrkir samkeppnishæfni, orkuöryggi og áfallaþol. Loftslagsstefna sem snýst um tækifæri en ekki fórnir, sameinar fólk og styrkir samfélagið okkar.
Umfram allt þurfum við að reiða okkur á nýjustu og bestu vísindi. Ekki láta ógnina eða hættuna blinda okkur eða leiða í gönur. Við þurfum að horfast í augu við áhættuna og taka skynsamlegar ákvarðanir byggðar á bestu fáanlegu upplýsingum og vísindum. Að beita heildstæðri og öryggismiðaðari nálgun á loftslagsáhættu er brýnna nú en nokkru sinni fyrr.